Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Þriðjudaginn 11. desember 1990


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Það er alveg sjálfsagt að hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar séu látnar í té þær upplýsingar sem menn óska eftir í nefndinni varðandi málið. Vona ég að ekki muni standa á því frekar en áður. Ég heyri það á ræðu hv. þm. Halldórs Blöndals að honum þykir þetta gott frv.