Húsnæðisstofnun ríkisins
Miðvikudaginn 12. desember 1990


     Danfríður Skarphéðinsdóttir :
    Virðulegi forseti. Eins og fram kemur í því nál. sem nú hefur verið mælt fyrir stend ég að því fyrir hönd Kvennalistans, svo og að þeim brtt. sem hér var mælt fyrir. Ég vildi þó aðeins gera örfárar athugasemdir.
    Í fyrsta lagi hefur orðið nokkuð mikil þensla í húsbréfakerfinu núna að undanförnu vegna breytinga sem hafa verið gerðar á því. Eins og öllum hv. þm. er kunnugt um þá tóku gildi 15. nóv. sl. ákvæði laganna um að húsbréf væri einnig hægt að nota í sambandi við nýbyggingar. Ég vil aðeins láta það koma fram hér sem mína skoðun að ég tel nauðsynlegt að þeir sem vinna við þetta kerfi, t.d. á fasteignasölum og í Húsnæðisstofnun fái fræðslu og þjálfun við að vinna með þetta nýja fyrirkomulag. Það er mjög nauðsynlegt til þess að ekki verði gerð mistök sem mætti koma í veg fyrir einmitt með því að fræða þá sem við þetta starfa. Það er auðvitað ljóst að þegar svo viðamikið kerfi er tekið upp, þá koma í ljós á því ýmsir agnúar. Þrátt fyrir 1. brtt. um að leyfilegt sé að fara í allt að 75% af eðlilegu matsverði fasteignar tel ég samt ástæðu til að óttast að enn sé hópur fólks sem lendir á milli tveggja kerfa svo að segja, þ.e. á milli félagslega íbúðakerfisins og húsbréfakerfisins. Þetta kom reyndar fram í umræðu hér í þessari hv. deild í gær. Þá benti hv. 18. þm. Reykv. á þá staðreynd að það er töluverður hópur fólks sem getur sig ekki hreyft til kaupa á húsnæði en fær heldur ekki fyrirgreiðslu í félagslega íbúðakerfinu vegna þess að það hefur of háar tekjur þó tekjurnar séu svo sannarlega lágar til þess að framfleyta sér af.
    Ég vildi aðeins ítreka þetta hér og þá skoðun okkar kvennalistakvenna að við teljum nauðsynlegt að efla stórlega félagslega íbúðakerfið til þess að koma til móts við þá hópa sem ekki eiga þess kost að kaupa sér eigið húsnæði í húsbréfakerfinu.
    Það eru auðvitað í þessu frv. ýmsir óvissuþættir. Það er t.d. ekki vitað hversu margir þurfa á aðstoð að halda vegna greiðsluerfiðleika. Það kom fram í störfum nefndarinnar að nú bíða hátt á annað hundrað manns eftir fyrirgreiðslu og starfsmenn Húsnæðisstofnunar og félmrn. giskuðu á að um gæti verið að ræða um 1000 fjölskyldur og að meðalskuldir þeirra væru 1200 -- 1300 þús. Þetta mun auðvitað þýða aukið framboð á húsbréfum en ekki er ljóst hversu mikil sú aukning verður. Ég tel þó rétt að standa að þeim breytingum sem hér eru gerðar. Það hefði auðvitað verið æskilegast að geta látið endurbótalánin taka gildi líka strax. Samkvæmt brtt. okkar er ekki gert ráð fyrir að þau taki gildi fyrr en 1. sept. en ég hef þegar bent á að það er dálítið erfitt fyrir þá sem eiga að vinna með kerfið ef stöðugt þarf að taka nýjar breytingar inn í það þannig að ég tel það verjandi á þeim forsendum og einnig fyrir þá sök að það er ljóst að ekki voru til neinir peningar í þeim fjárveitingum sem ætlaðir eru í byggingarsjóðina til að sinna þessum málaflokki.
    Ég vildi svo leggja áherslu á undir lokin að það er

búið að vinna að því síðan 1985 að þessi greiðsluerfiðleikalán sem áttu að vera tímabundin ráðstöfun yrði óþörf en hér er enn gert ráð fyrir að þetta sé tímabundið til 12 mánaða. Það er mjög brýnt að reynt verði með öllum tiltækum ráðum að koma í veg fyrir að slík ákvæði þurfi að vera í lögunum, að það séu gerðar raunhæfar áætlanir fyrir þá sem ætla að kaupa sér húsnæði og fólk aðstoðað við að meta greiðslugetuna þannig að ekki þurfi að vera með þennan lánaflokk inni. Það er erfitt fyrir þá einstaklinga sem standa frammi fyrir greiðsluerfiðleikum að þurfa stöðugt að leita nýrra úrræða og því er þetta spurning um aukna ráðgjöf og meiri stöðugleika í efnahagslífinu.
    Eins og fram kom bíða 200 manns og er mjög brýnt að það fólk fái lausn sinna mála. Þess vegna styð ég frv. að sjálfsögðu og þær brtt. sem nefndin ber fram.