Halldór Blöndal :
Herra forseti. Hæstv. fjmrh. var að tala um það hér áðan, sem er öldungis rétt, að ríkissjóður hefur þrengt sér meira inn á hinn innlenda lánamarkað en áður með þeim afleiðingum að raunvextir hafa hækkað verulega á þessu ári miðað við þær forsendur sem eru fyrir því sem kallað hefur verið þjóðarsátt. Það má segja að upp á ríkissjóð hafi fyrst og fremst staðið að reyna að hamla gegn aukinni eyðslu og reyna að draga sig til baka á lánsfjármarkaðnum til að gefa atvinnuvegunum meira svigrúm þar og til að draga úr vaxtaokri. En niðurstaðan hefur orðið þveröfug eins og ráðherrann vék hér að áðan. Sókn ríkissjóðs inn á hinn innlenda lánamarkað hefur vaxið jafnt og þétt. Það kemur fram, bæði í útlánum almennra peningaviðskiptastofnana og eins hjá fjárfestingarlánasjóðum, að eftirspurn eftir lánum til nýrra fjárfestinga, hagræðingar og tækniþróunar og nýjunga í atvinnurekstri hefur dregist mjög mikið saman. En á hinn bóginn hefur það færst mjög í vöxt að sótt hefur verið um lánveitingar úr fjárfestingarlánasjóðum til endurfjármögnunar og fjárhagslegrar endurskipulagningar. Þetta hefur komið mjög skýrt fram í þeim viðræðum sem við höfum átt í fjh.- og viðskn. Ed. við þá fulltrúa fjárfestingarlánasjóða og atvinnufyrirtækja sem okkur hafa hitt.
Ég vil vekja athygli á því, herra forseti, að það er upp og ofan hvað hæstv. fjmrh. telur rétt að setja í lánsfjárlög fyrir 1991 og hvað hann telur rétt að setja í lánsfjárlög fyrir 1990. Ég get tekið hér lítið dæmi: Í 5. gr. frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1991 er Hríseyjarhreppi heimilað að taka lán á árinu 1991 að fjárhæð allt að 23 millj. kr. eða jafnvirði í erlendri mynt vegna ferjunnar Sæfara. Þessi greiðsla féll til á þessu ári og efnt til skammtímaskuldbindinga með ábyrgð ríkissjóðs vegna þessa láns. Því hefði auðvitað verið eðlilegt að taka það inn í lánsfjárlög á þessu ári.
Ég vil spyrja hæstv. fjmrh. að því hvernig farið verður með skuldbindingar Verðjöfnunarsjóðs sjávarútvegsins, hversu miklar þær skuldbindingar eru miðað við daginn í dag sem ríkissjóður tók á sig vegna laga á sl. vori eða hverjar eru nýjustu tölur sem hæstv. fjmrh. hefur um það efni. Það er ekki að sjá að hann geri ráð fyrir því að mæta þeirri skuldbindingu með heimild í lánsfjárlögum. Spurningin er hvernig þessar greiðslur hafa verið bókfærðar í ríkisreikningi, hvort þær koma inn á hallarekstur ríkissjóðs á þessu ári eða hvort hann hugsar sér að reyna að fela greiðslurnar með einhverjum kúnstum og hvernig hann líti yfirleitt á það mál. Væri mjög gott að fá upplýsingar um það.
Ég sé ekki ástæðu til þess, herra forseti, að hrósa því neitt sérstaklega að þessi lánsfjáraukalög skuli lögð fram nú síðustu dagana fyrir jól. Það sem þar stendur er svo sem gott og gilt. Hitt vitum við að ekki eru öll kurl komin til grafar. Við vitum að hæstv. fjmrh. gengur ekki frá því frv. sem hér er til umræðu þannig að það sé efnislega rétt ef litið er á málið með sanngirni og heilbrigðri gagnrýni. En honum finnst skemmtilegt að skreyta sig með þessu, ráðherranum, og ekkert við því að segja. Þess vegna er sjálfsagt að reyna að afgreiða þetta fljótt úr nefndinni. Ég hef ekki á móti því en vek aðeins athygli á því að ræða ráðherra staðfestir það sem við höfum sagt í stjórnarandstöðu, að ríkið sækir inn á lánsfjármarkaðinn á æ fleiri sviðum. Hefur stofnað sérstök fyrirtæki í því skyni við hið opinbera með þeim afleiðingum að raunvextir hafa hækkað, ekki síst á óverðtryggðum lánum. Ég veit ekki hvort þingheimur hefur gert sér grein fyrir því að á sumum lánum húsbyggjenda eru 9,5% vextir þó svo að þessi lán séu tryggð með byggingarvísitölu. Það er auðvitað gífurlegt vaxtaokur á meðan aðrir búa við allt önnur og betri kjör. Þannig býður ríkið þegnum sínum mjög mismunandi aðstöðu. Aðalatriðið er að vextir þyngjast, halli ríkissjóðs eykst og óstjórnin fer vaxandi meðan þessi ríkisstjórn situr sem nú er við völd.