Lánsfjárlög 1990
Miðvikudaginn 12. desember 1990


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegur forseti. Ég vænti þess að hv. þm. Halldór Blöndal muni í fjh.- og viðskn. fá upplýsingar um þau atriði sem hann hefur hér spurt um svo hann geti haft nákvæmar tölur. Ég vil aðeins segja það að reiknað er með því að greiðsla af því láni sem hann gat um vegna Verðjöfnunarsjóðs komi til gjalda á næsta ári. Gerður hefur verið samningur við Seðlabankann um það mál sem sjálfsagt er að kynna ítarlega í nefndinni þegar hún tekur þetta til umfjöllunar.