Húsnæðisstofnun ríkisins
Miðvikudaginn 12. desember 1990


     Guðrún J. Halldórsdóttir :
    Hæstv. forseti. Það getur verið að það sé vegna fákunnáttu minnar í þingsköpum og þinglegri meðferð hér að ég skil ekki þessa meðferð. Fyrir augnabliki síðan fékk hv. 2. þm. Norðurl. e. frestun á umfjöllun þessa máls. Svo líður hálftími og þá er allt í einu leyft að fjalla um þetta mál. Það getur vel verið að það sé af því að ég sé svona undarlega illa að mér um fundarsköp og fundarreglur að þetta skuli vera hægt, en kannski getur hæstv. forseti skýrt hvernig stendur á þessu.