Slysavarnaráð
Miðvikudaginn 12. desember 1990


     Jóhann Einvarðsson :
    Hæstv. forseti. Hér er flutt athyglisvert mál að ýmsu leyti og skal ég ekki gera lítið úr efnisatriðum þess eða því sem er raunverulega upphafið að þessu, þ.e. samþykkt Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um að reyna að draga um fjórðung úr slysum fyrir næstu aldamót. Það sem kom mér til að standa upp nú er að það er raunverulega dálítið sérkennilegt hvernig að þessu er staðið. Ég þekki ekki forsöguna nema að mjög takmörkuðu leyti og mun þá flm. skýra það fyrir mér betur. Ef ég skil rétt hefur flm. verið formaður nefndar sem var skipuð af fyrrv. heilbrrh. til þess að reyna að fylgja eftir þessari samþykkt Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Sú nefnd hefur skilað áliti til heilbrrh. Ég skil það svo eins og grg. ber með sér. Þar kemur m.a. fram að fyrir liggur að núv. heilbrrh. Guðmundur Bjarnason hefur ákveðið að stofna slysavarnaráð í samræmi við þær tillögur sem fram komu í nefndinni. Nú veit ég ekki hvort flm. er orðinn óþolinmóður eftir þeirri framkvæmd ráðherrans. Ég hygg að það sé venja þegar nefndir skila áliti til ráðherra, starfshópur sem er að vinna fyrir ráðuneytin, þá flytji einstakir nefndarmenn ekki slík frv. nema þeir telji fullreynt að ráðherra ætli ekki að fylgja tillögum nefndarinnar eftir. Ég hef ekki rætt við ráðherrann um þetta og hef því ekki svör við þessu en vil þess vegna spyrja flm. hvort hann telji fullreynt að ráðherrann ætli ekki að stofna þetta slysavarnaráð. Og hins vegar hvort ráðherrann telur kannski að ekki sé þörf á sérstakri lagasetningu um það. En ef það liggur fyrir að ráðherrann ætli sér að stofna ráðið og leggja tillögu þar að lútandi fyrir þingið á næstunni, þá finnst mér það dálítið sérkennileg málsmeðferð að einstakir nefndarmenn, jafnvel formenn nefnda sem eru að vinna fyrir ráðuneytin, grípi þá fram fyrir hendur á ráðherra. Þar með er ég alls ekki að gera lítið úr því málefni sem er verið að ræða um en þetta er dálítið sérkennilegt. Ég hef ekki orðið var við það áður í þingsölum að slíkt sé gert fyrr en menn telja það fullreynt að ráðherrar ætli ekki að fylgja slíkum tillögum.