Þórhildur Þorleifsdóttir :
Virðulegur forseti. Kvennalistinn hefur aldrei léð máls á því að ríkisvaldið gripi inn í kjarasamninga með lögum. Að okkar áliti brýtur það í bága við þau lýð - og mannréttindi sem við ættum að gæta og vernda líkt og sjáaldurs auga okkar. Engin rök, ekki heldur efnahagsleg, réttlæta þá gjörð sem framin var með bráðabirgðalögunum 3. ágúst sl. og stendur til að Alþingi leggi blessun sína yfir.
Þau spjót sem nú beinast gegn BHMR geta fyrr en varir beinst að öðrum. Sá sem einu sinni kemst upp með ofbeldi og valdbeitingu, smakkar á sætleik valdsins, er vís til að ganga á lagið. Í þeirri von að þessi ósvinna verði stöðvuð og verði allri þjóðinni áminning um að varðveita dýrkeypt lýðréttindi og frelsi segi ég nei.