Matthías Bjarnason :
Herra forseti. Þessi umræða hefur verið fremur hófleg. Þó fannst mér hæstv. viðskrh. fara heldur frjálslega með sannleikann í sínum ræðum, sérstaklega með samanburðartölur á vöxtum og öðru, eins og þegar hann tekur 5% vexti Byggðastofnunar. Ég efast um að lánveitingar með slíkum vöxtum nái hálfu prómilli eða kvart prómilli.
Að bera svo aftur saman vexti Húsnæðisstofnunar, það vantar í samanburðinn að bera saman þá vexti sem fólk verður að greiða sem á annað borð heldur íbúðum sínum á meðan það er að bíða eftir húsnæðislánum. Þar hefur verið hlaupið úr einni vígstöðunni í aðra. Margt fólk missir íbúðirnar, sumt getur með aðstoð vina og vandamanna haldið sínu. Svo er verið að taka svona stikkprufur til viðmiðunar.
Ég held að öruggasta sönnun þess sé að það hafa engir aðilar í þjóðfélaginu haft það betra á liðnu ári en þeir sem fjármagnið hafa undir höndum og stjórna því. Mér er alveg ljóst að afkoma sumra bankanna á þessu ári er lakari og það miklu lakari. Ég get alveg tekið undir þau orð hv. 1. þm. Reykv. að það er engin ástæða til þess að ráðast að bönkum og viðskiptastofnunum út af öllu. Bankarnir hafa tekið á sig mikið og bætt þjónustuna á liðunum árum mjög verulega. Bankar hafa víða komið til móts við atvinnulífið, en það fer alveg eftir því hvaða bankar það eru. Þar skiptir mjög í tvö horn. Hins vegar þegar talað er um fjármagnið, afkomu fyrirtækja eins og bankanna, þá verður mönnum sem eru komnir í bankaráð eða einhverjar stjórnir oft á að verja alveg hreint eins og þeir mögulega geta alla þá starfsemi og helst að kenna mest í brjósti um þessar stofnanir. Ég segi fyrir mitt leyti, eftir útkomu bankanna á sl. ári, þá kenni ég ekkert í brjósti um þá sérstaklega. Ég finn miklu meira til með hinum almenna launþega í þjóðfélaginu. Núna er talað um að nauðsynlegt sé að hækka vexti og það sé nauðsynlegt að gera þetta og hitt til að tryggja stöðu þessara fjármagnsfyrirtækja allra, en landið ætlar að sporðreisast ef laun hækkuðu eitthvað lítillega. Hvers vegna má launafólkið í landinu alltaf taka á sig stóraukin útgjöld en hinir sem kannski hafa meira á milli handanna verða að fá hækkun ef eitthvað á bjátar?
Ég verð að segja það eins og er að á sama tíma og ríkisvaldið, þessi æruverðuga stofnun, Alþingi, er að skera niður framkvæmdir til bráðnauðsynlegra mála sem beðið hefur verið eftir árum saman og það á að fara að afgreiða hér fjárlög og það með þessum hætti, þá hef ég ekki orðið var við að í bönkum landsins sé verið að skera niður framkvæmdir. Ég sé ekki annað en að bygging bankastofnana eigi sér stað á hverju einasta ári. Þar virðist vera alveg nóg af peningum í þeim efnum. Það eru því ákveðnar skyldur sem hvíla á lánastofnunum.
Auðvitað verður að vera svipað hlutfall milli innlána og útlána. Hvað ætli bankastofnanir séu búnar að krækja sér í af innlánsvöxtum af almennum sparifjárbókum? Eldra fólk margt kann ekki að skilja milli
þessara nýju aðferða, kjörbækur, metbækur og hvern fjandann sem þetta heitir. Það hefur verið með sitt sparifé inni á þessum almennu bókum. Ég fullyrði að bankar landsins hafa á liðnum árum haft af þessu fólki milljarða. Það er ekki fyrr en núna á síðustu árum að farið er að kynna þetta betur fyrir fólki. Ég veit ekki hvar hefur verið okur og hvar hefur verið meiri álagning en einmitt í þessum almennu sparisjóðsbókum.
Ég held að það sé því ekki alveg einhlítt þó menn séu í bankaráðum að þeir eigi að taka upp algjöra vörn fyrir bankana og bankastarfsemina. Þeir eiga líka að hafa augun opin fyrir gagnrýni á sínar lánastofnanir. Og ég endurtek það að ég tel að helstu lánastofnanir í landinu hafi ekki verið í neinu peningahallæri þegar hefur þurft að byggja nýja banka eða yfir nýja bankastarfsemi. Á sama tíma og þingmenn eru að skera niður bráðnauðsynleg framlög eins og til hafnamála, því þjóðin hefur ekki ráð á því, þurfa þessar stofnanir ekki að huga að neinu, þær gera bara eins og þeim sýnist.
Ég ber mikla virðingu fyrir mörgum lánastofnunum í þessu landi og tel að þær hafi mikilsverðu hlutverki að gegna. Þær hafa víða komið inn og sýnt bæði skilning og víðsýni. Það er rétt sem hv. 1. þm. Reykv. sagði áðan að bankarnir verða að taka á sig mikla áhættu og mikla skelli en fyrsta skilyrðið til þess að öðlast skilning almennings í landinu er það að almenningur sjái að þar sé gætt hófs í sambandi við allar fjárfestingar, í sambandi við allan rekstur og alla eyðslu. Þar á að fara saman það sem ætlast er til að almenningur í landinu geri. Og það eru fleiri en bankarnir sem þurfa að hugsa þannig, það væri ekki vanþörf á að hæstv. ríkisstjórn hressti upp á minni sitt í þessum efnum og líka sjálft Alþingi Íslendinga.