Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
Virðulegi forseti. Heimild til vaxtabreytinga á hlutaverðtryggðum lánum Húsnæðisstofnunar ríkisins frá árunum 1974 -- 1979 byggir á sérstöku bráðabirgðaákvæði sem kom fyrst inn í lög um Húsnæðisstofnun ríkisins 1980 og hefur haldist þar allar götur síðan en var þá breytt með lögum nr. 60/1984. Ákvæði þetta er svohljóðandi:
,,Ríkisstjórninni er heimilt, að fengnum tillögum húsnæðismálastjórnar, að lækka vexti af hlutaverðtryggðum lánum Byggingarsjóðs ríkisins sem veitt voru á árunum 1974 -- 1979. Við ákvörðun um vaxtalækkun skal við það miðað að greiðslubyrði lánsins verði ekki meiri en ef lánið hefði verið veitt með þeim kjörum sem gilda um lán Byggingarsjóðs ríkisins þegar ákvörðum er tekin um vaxtalækkun.``
Hlutaverðtryggð lán frá 1974 -- 1979 hafa borið 5 -- 9,75% nafnvexti og verðtryggingarhlutinn hefur ýmist verið 30, 40 eða 60%. Heimildarákvæðinu hefur einungis verið beitt gagnvart lánum með 60% verðtryggingu sem bera nú 2,8% vexti en öll lán með 30 og 40% verðtryggingu bera nú 9,75% ársvexti, þ.e. frá maí 1978. Lán sem bera 60% verðtryggingu báru mun hærri raunvexti en giltu á önnur lán árið 1979 eða á bilinu 3,4 -- 5,74% miðað við allan lánstímann, en raunávöxtun hlutaverðtryggðra lána sem bera 30 og 40% verðtryggingu er hins vegar, þegar miðað er við allan lánstímann, mest 3,2% og allt niður í það að vera neikvæðir raunvextir um 4,2%. Algengast er þó að raunvextir þessara lána séu á bilinu 1 -- 2% þegar miðað er við allan lánstímann. Nýbyggingarlánin bera yfirleitt jákvæða raunvexti en lán til kaupa eldra húsnæðis, G - lánin, bera öll neikvæða raunvexti þegar litið er yfir allan lánstímann.
Þetta er meginskýring þess að heimild til vaxtalækkunar hefur eingöngu verið beitt gagnvart 60% verðtryggðum lánum sem báru mun hærri raunvexti en önnur hlutaverðtryggð lán. 30 og 40% verðtryggðu lánin bera mun lægri meðalraunvexti allan lánstímann en þá 4,5% raunvexti sem lán Byggingarsjóðs ríkisins bera í dag. Vandamálið er hins vegar að greiðslubyrði þessara lána þyngist þegar líður á lánstímann og raunávöxtun allra 30 og 40% hlutaverðtryggðu lánanna er nú það sem eftir er lánstímans á bilinu 8,95% til 9,53%. Þetta þýðir að íbúðarkaupandi sem yfirtekur svona lán við eigendaskipti greiðir raunvexti á ofangreindu bili það sem eftir er lánstímans en sá sem fékk lánið í upphafi naut mun lægri raunvaxta.
Þegar þetta heimildarákvæði hefur komið til athugunar undanfarin fimm ár hefur skuldbreytingu, þ.e. vaxtalækkun á 30% og 40% hlutaverðtryggðum lánum alltaf verið hafnað af húsnæðismálastjórn á þeirri forsendu að miða eigi við greiðslubyrði allan lánstímann en ekki greiðslubyrði einstakra lántakenda það sem eftir er lánstímans. Ljóst er að þessu bráðabirgðaákvæði verður ekki beitt nema einu sinni yfir sömu lán og vanda verður því ákvörðun í þessu máli. Annað er að ríkisstjórninni er einungis heimilt að beita þessu ákvæði að fengnum tillögum húsnæðismálastjórnar.
Það liggja ekki fyrir neinar tillögur frá húsnæðismálastjórn um að lækka þessa vexti og þegar álits hennar hefur verið leitað, eins og ég sagði áður, þá hefur hún eindregið lagst gegn vaxtalækkun með röksemdum um að greiðslubyrði þessara lána skuli miðast við allan lánstímann en ekki það sem eftir er lánstímans.
Félmrn. skrifaði m.a. húsnæðismálastjórn bréf í janúar 1989 þar sem farið var fram á umsögn Húsnæðisstofnunar um vaxtalækkun 30 og 40% verðtryggðra lána. Endanleg afgreiðsla húsnæðismálastjórnar kom með bréfi, dags. 18. jan. 1990, þar sem lagt var til að kjör á lánum þessum verði höfð óbreytt frá því sem verið hefur. Sama niðurstaða varð þegar ráðuneytið fór þess á leit við húsnæðismálastjórn með bréfi, dags. 9. júlí 1986, að beita þessari heimild. Neikvætt svar húsnæðismálastjórnar barst þá í mars 1987. Tekið skal fram að ítarlegar athuganir og greinargerðir hafa verið gerðar á stöðu þessara mála í tengslum við bréfaskriftir ráðuneytisins og húsnæðismálastjórnar.
Staða þessara mála í dag er að félmrn. hefur óskað því með bréfi til húsnæðismálastjórnar í september sl. að upp yrðu teknar viðræður um að athuga nánar lausn þessa vandamáls. Þessar viðræður eru nú í gangi og vonandi fæst niðurstaða í því máli fljótlega svo samkomulag geti tekist í þessu máli.
Að lokum er rétt að hafa í huga ábendingar Húsnæðisstofnunar um að tekjutap, þ.e. lækkun innstreymis Byggingarsjóðs ríkisins, fyrir hvert 1% sem þessir vextir eru lækkaðir um eru nær 16 millj. kr. á ári miðað við verðlag nú í desember. Miðað við lækkun í t.d. 4,5% yrði tekjutap Húsnæðisstofnunar ríkisins um 100 millj. kr. á ári.