Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson) :
Hæstv. forseti. Á þskj. 215 beinir hv. 18. þm. Reykv. til mín svohljóðandi fsp.: ,,Hvenær hyggst dómsmrh. leggja fram frv. til laga um sjálfseignarstofnanir, sbr. bréf dómsmrn., dags. 6. sept. 1989, þar sem Guðmundi Skaftasyni, fyrrv. hæstaréttardómara, var falið að gera drög að slíkum lögum?``
Eins og fram kom í máli fyrirspyrjanda samþykkti Alþingi hinn 5. maí 1989 eftirfarandi þáltill. Guðrúnar J. Halldórsdóttur, Danfríðar Skarphéðinsdóttur, Guðrúnar Agnarsdóttur, Kristínar Einarsdóttur, Kristínar Halldórsdóttur og Málmfríðar Sigurðardóttur:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir gerð frv. til laga um sjálfseignarstofnanir sem lagt verði fyrir næsta löggjafarþing.``
Eins og fram kemur í fsp. var Guðmundi Skaftasyni, fyrrv. hæstaréttardómara, með bréfi dags. 6. sept. 1989 falið að gera drög að frv. til laga um sjálfseignarstofnanir. Samkvæmt upplýsingum Guðmundar vinnur hann nú að því að semja drög að slíku frv. Í því sambandi hefur hann kynnt sér lög hinna Norðurlandanna um sjálfseignarstofnanir. Hann áætlar að ljúka verkinu á sumri komanda. Samkvæmt þeirri áætlun yrði unnt að leggja fram frv. til laga um sjálfseignarstofnanir í þingbyrjun haustið 1991.