Fyrirspyrjandi (Stefán Valgeirsson) :
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. En vegna ummæla síðasta ræðumanns vil ég benda á að ég var ekki að segja að yfirvinnan væri óunnin. Ég var að spyrja um það hvort það væri um að ræða óunna eða ómælda yfirvinnu. Manni er sagt af þeim sem vinna sums staðar í kerfinu að sumir skili bara sínum ákveðna tíma. Þar af leiðir að í þeim tilvikum er yfirvinnan talin vera óunnin og það var það sem ég er að spyrja um. Mér er vel kunnugt um hvernig það er í skólunum, ekki síst í heimavistarskólum, að þeir skólastjórar og eftirlitsmenn þar fá ekki fulla greiðslu fyrir sína vinnu, en það er annað mál.
Hér eru því miður ekki nægar upplýsingar um hvernig þessu er fyrir komið og sérstaklega í þeim tilvikum þar sem talið er og manni er sagt að í nokkuð mörgum tilvikum, sérstaklega í ráðuneytunum, séu vissir menn sem fái borgaða ómælda og óunna yfirvinnu. Og sé það ekki rétt er gott að það komi fram, en þeir segja sumir frá þessu sjálfir. Það er málið.