Lögfræðilegt álit á bráðabirgðalögunum
Fimmtudaginn 13. desember 1990


     Halldór Blöndal :
    Hæstv. forseti. Ég skildi ekki samhengi þeirra orða hæstv. forsrh., hvað það kæmi málinu við, að það væri ekki í fyrsta skipti sem þyrfti að leiðrétta það sem ég sagði hér í stólnum. Það sem ég sagði var að þegar talað er um álit eða álitsgerð lögfræðinga er ævinlega átt við skriflega álitsgerð. Ég vil ítreka þetta en vil á hinn bóginn taka fram að ef um opinbert, munnlegt álit er að ræða hjá lögfræðingum þá liggja að sjálfsögðu fyrir minnispunktar í ráðuneytinu og ekki væri lakara að fá þá í fjh. - og viðskn.