Fjárlög 1991
Fimmtudaginn 13. desember 1990


     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Um leið og ég þakka hv. fjvn. fyrir vel unnin störf vil ég vekja athygli á brtt. á þskj. 107 sem hér hefur legið frammi um skeið frá forsetum þingsins. Það vekur nokkra undrun mína að þessi litla tillaga skuli ekki hafa náð fram að ganga áður en lagðar voru fram brtt. til 2. umr. Ég kemst ekki hjá því að skýra þetta mál nokkuð.
    Hér er um að ræða beiðni forseta þingsins um að Hið íslenska þjóðvinafélag verði fastur liður, undirliður Alþingis í fjárlögum, og farið er fram á að þessu sinni 500 þús. kr. Hér eru menn að forvalta milljörðum og hundruðum milljóna en hér er beðið um 500 þús. kr. til þessa virðulega félags. Ég tel mig ekki komast hjá því að skýra í örfáum orðum hvað Hið íslenska þjóðvinafélag er.
    Eins og menn vita var Alþingi ráðgjafarþing frá stofnun þess 1845 til ársins 1874 og beindust samþykktir þess á því tímabili jafnan að auknum þjóðréttindum Íslendinga. Á ofanverðum 7. áratug aldarinnar harðnaði ósamþykki Alþingis og Danastjórnar um nýja stjórnskipun Íslendinga, aukið sjálfstæði og fjárforræði. Stjórnin lagði fyrir Alþingi frv. um stjórnskipun. Alþingi breytti þeim í átt að sjálfstæðiskröfum Íslendinga án nokkurra undirtekta af hálfu Danastjórnar.
    Sumarið 1869, á nýkjörnu þingi, samþykktu 18 þjóðkjörnir alþingismenn undir forustu Jóns Sigurðssonar að vinna að stofnun félags til baráttu fyrir landsréttindum Íslendinga. Vitað er að unnið var að stofnun félagsins á sýslufundi í Suður - Þingeyjarsýslu 8. júní 1870. Undir þinglok 1871 var félagið formlega stofnað, hinn 19. ágúst, því gefið nafn, sett lög til bráðabirgða, Jón Sigurðsson forseti var kosinn formaður og Halldór Kr. Friðriksson varaformaður. Stofnendur voru 17 þjóðkjörnir alþingismenn. Utan samtakanna voru þrír þjóðkjörnir þingmenn og sex konungkjörnir. Tíminn fram til næsta Alþingis var notaður til að undirbúa félagsstörfin og afla fjár.
    Árið 1873, hinn 22. júlí, var haldinn félagsfundur og voru félaginu sett lög að undangenginni endurskoðun fimm manna nefndar. Í lögunum stendur m.a., með leyfi forseta:
    ,,Það er tilgangur félagsins að reyna með sameiginlegum kröftum að halda uppi þjóðréttindum Íslendinga, efla samheldni og stuðla til framfara landsins og þjóðarinnar í öllum greinum. Einkanlega vill félagið kappkosta að vekja og lífga meðvitund Íslendinga um að þeir séu sjálfstætt þjóðfélag og hafi því samboðin réttindi. Nú sem stendur liggur næst að fylgja því fram að vér fáum þá stjórnarskrá er veiti oss fullt stjórnfrelsi í öllum íslenskum málum, alþing með löggjafarvaldi og fullu fjárforræði og landsstjórn í landinu sjálfu með fullri lagalegri ábyrgð fyrir alþingi.
    Forstöðumenn félagsins eru: Forseti og varaforseti, sem í forföllum forseta eða við fráfall hans kemur í hans stað, og forstöðunefnd og séu í henni þrír menn auk forseta og varaforseta. Aðgangur í félaginu stendur öllum opinn sem komnir eru til vits og ára og sem vilja efla félagið og styrkja til að framkvæma tilgang

þess, hvort sem er yngri eða eldri, búandi eða búlaus, karl eða kona, innlendir eða útlendir. Framkvæmdastörf félagsins skulu einkum fólgin í þessu fernu:
    1. Ritgerðum og tímaritum um alþjóðleg málefni, einkum um réttindi Íslands, hagi þess og framfarir eður/og styrk til slíkra rita. Veita má og styrk eða þóknun einstökum mönnum er sér í lagi styrkja til að efla framfarir landsins eða framkvæma tilgang félagsins.
    2. Samkomum til að ræða þau alþjóðleg málefni er liggja innan þeirra takmarka sem félagið setur framkvæmdum sínum.
    3. Sendiferðum innan lands eða utan í félagsins þarfir eða í þess erindum.
    4. Að því leyti efnin kynni að leyfa vill félagið styrkja það sem efla má bæði bóklega og verklega menntun í landinu, verslun og verslunarsamtök, atvinnu og framför landsmanna í hverju efni sem er, bæði til sjós og lands.
    Félagið hefur aðalfundi annað hvert ár á alþingum. Forseti er þar fundarstjóri og skal hann sjá um bókun þess á fundarbók félagsins er samþykkt verður á fundum þessum.``
    Í stjórn félagsins voru kosnir Jón Sigurðsson forseti, Halldór Kr. Friðriksson varaforseti og í forstöðunefnd Egill Egilsson, Jón Guðmundsson og séra Stefán Thorarensen. Félagið hófst þegar handa um að framkvæma stefnumál sín. Það stóð fyrir þjóðfundi á Þingvöllum í júní 1873 og þjóðhátíð á Þingvöllum í minningu 1000 ára Íslandsbyggðar í ágúst 1874. Á árinu 1874 var hafin útgáfa ársrits, Andvara, sem tók við af Nýjum félagsritum, ársriti Jóns Sigurðssonar og félaga hans. Það tímarit kemur út enn þann dag í dag. Félagið gaf einnig út almanak, hið fyrsta 1874, almanak fyrir árið 1875.
    Eftir þjóðhátíðina 1874 og gildistöku hinnar nýju stjórnarskrár, sem Kristján konungur IX. færði þjóðinni á hátíðinni, urðu verulegar breytingar á starfi og stefnu Þjóðvinafélagsins. Kostnaður við þjóðhátíðina varð nokkur ár þungur baggi á félaginu, en tekjur þess voru þá félagsgjöld og samskotafé. Á Alþingi 1879 var samþykkt að veita fé á fjárlögum til að greiða þjóðhátíðarskuld félagsins. Á Alþingi 1885 var samþykkt fjárframlag til félagsins á fjárlögum fyrir árin 1886 og 1887. Hefur það síðan notið árlegs framlags á fjárlögum en það er satt að segja Alþingi til lítils sóma hvernig þau framlög hafa verið á síðustu árum.
    Lengst af hefur aðalverkefni Þjóðvinafélagsins verið útgáfa ársritanna tveggja, Andvara og Almanaksins, og annarra rita eftir efnum og ástæðum. Mest þeirra er rit Páls Eggerts Ólasonar um Jón Sigurðsson, sem er bók í fimm bindum sem komu út á árunum 1929 -- 1933.
    Árið 1940 urðu þáttaskil í starfi Þjóðvinafélagsins. Þá hófst samstarf við Menningarsjóð um bókaútgáfu og hefur staðið síðan. Þjóðvinafélagið hefur séð um útgáfu almanaks framan af, bæði Íslandsalmanaksins svonefnda og Þjóðvinafélagsalmanaksins. Á árinu 1973 varð sú breyting að Háskóli Íslands tók við útgáfu Íslandsalmanaksins og er það nú að öllu leyti á vegum

hans. Þjóðvinafélagið sér um útgáfu hins stærra almanaks þar sem birt er jafnframt árbók Íslands.
    Þjóðvinafélagið hefur annast ritstjórn Andvara, þó með því fráviki að á árunum 1959 -- 1972, fyrst eftir að ritið var stækkað, var samstarf um ritstjórn við bókaútgáfu Menningarsjóðs.
    Þegar leið að 100. ártíð Jóns Sigurðssonar forseta árið 1979 ákvað stjórn félagsins að gefa út í minningu hans nokkurt úrval eða sýnishorn af sendibréfum til hans. Fyrsta bindi bréfanna kom út á öndverðu ári 1980. Annað bindi bréfanna kom út árið 1984 og stefnt hefur verið að að gefa út þriðja bindi bréfanna en til þess hefur skort fjármagn. Nú standa vonir til að það geti komið út á næsta ári með góðu fulltingi Alþingis, en á því ári verða liðin 180 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar og 120 ár frá stofnun Hins íslenska þjóðvinafélags. Stjórn þessa félags skipa nú, eins og hv. alþm. munu vita, Jóhannes Halldórsson forseti, dr. Jónas Kristjánsson varaforseti og meðstjórnendur eru dr. Guðrún Kvaran, Heimir Þorleifsson og Ólafur Ásgeirsson.
    Hæstv. forseti. Allir hv. alþm. eru efalaust einhuga um að standa vörð um menningararf okkar. Þetta aldna félag er hluti hans og ekki ómerkari en svo að á veggjum þessa salar er aðeins ein mynd. Hún er af fyrsta forseta þessa félags. Ársfundir félagsins eru samkvæmt lögum þess haldnir hér á hinu háa Alþingi. Fjárframlög hins háa Alþingis undanfarin ár hafa ekki borið þess vitni að því væri annt um félagið og ekki hafa forsetar þess og stjórn verið kröfuharðir. Sjálfir hafa þeir unnið félaginu af ótrúlegri ósérplægni fyrir litla sem enga umbun. Er vart við því að búast að fræðimenn af yngri kynslóðinni taki við því starfi við þær aðstæður. Svo að dæmi sé tekið var árið 1988 fjárframlag hins háa Alþingis til félagsins 80 þús. kr.
    Forsetar Alþingis eru ekki að biðja um háa fjárhæð. Hér er verið að biðja um fjárhæð sem duga megi til þess að unnt sé að ljúka útgáfu þriðja og síðasta bindis safns bréfa til Jóns Sigurðssonar og nafnaskrá yfir allar bækurnar þrjár. Forsetar þingsins skora á hv. þm. að samþykkja þessa fjárveitingu nú við afgreiðslu frv. til fjárlaga til 3. umr. sem virðingarvott við þetta aldna félag, sem ekki á svo lítinn þátt í því að Ísland er nú sjálfstætt ríki. Og ekki síður að brtt. nái fram að ganga eins og hún er, að Hið íslenska þjóðvinafélag verði sjálfstæður undirliður Alþingis þannig að félagið sé ekki háð velvild einstakra forseta heldur sé framtíð þess tryggð til frambúðar.