Fjárlög 1991
Fimmtudaginn 13. desember 1990


     Danfríður Skarphéðinsdóttir :
    Virðulegur forseti. Fulltrúi Kvennalistans í hv. fjvn., Málmfríður Sigurðardóttir, gerði í dag grein fyrir afstöðu okkar í Kvennalista til þessa fjárlagafrv. og sé ég ekki ástæðu til þess að endurtaka það sem hún sagði. Þó tel ég rétt að minna á að því fer fjarri að þær áherslur sem í fjárlagafrv. birtast séu konum að skapi, enda hafa þær lítt komið nærri því að móta þann grunn sem bæði þetta fjárlagafrv. og öll hin fyrri hafa byggst á og er raunar kominn tími til að þar verði breyting á. Sennilega hafa fáir næmari skilning á þeim vanda sem fjármálaráðherrar á hverjum tíma standa frammi fyrir við að láta enda ná saman en einmitt konur. Það hefur komið í hlut kvenna í aldanna rás að reyna að láta enda ná saman, að deila því sem til skiptanna er hverju sinni milli heimilisfólksins og gæta þess að allir fái lágmarks næringu og annan aðbúnað. Þannig hafa konur ætíð þurft að huga að þeirri heild sem hver fjölskylda er en jafnframt hafa í huga mismunandi þarfir einstaklinganna. Þær hafa gætt þess að börnin, gamla fólkið og hinir sjúku fái sinn skerf af því sem til skiptanna var.
    Þá hefur það einnig komið í hlut kvenna að hlúa að og ferja á milli kynslóða þá menningu sem þjóð okkar byggir á. Sú andlega næring sem menningin gefur er óaðskiljanlegur hluti frá daglega brauðinu og amstrinu og hefur svo sannarlega átt sinn þátt í því að halda lífinu í þjóðinni á erfiðum tímum. Vegna starfa sinna og hlutverks inni á heimilunum og utan þeirra hafa konur annan skilning á þörfum annarra og þeim vanda að þurfa stöðugt að hugsa um létta pyngjuna, láta enda ná saman en hafa jafnframt hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. Ekki er annað hægt að segja, og býst ég við að allir hv. þm. geti tekið undir það með mér, að konum hafi farist þetta verk vel úr hendi og því löngu orðið tímabært að konur fái tækifæri til að leggja hönd á plóg við gerð fjárlagafrv. fyrir þjóðarheimilið. Fullyrði ég að við það verk mundi nýtast vel reynsla og þekking kvenna á rekstri heimilanna og hinna fjölbreytilegu þarfa þeirra sem þar búa. Konur eru enn mun lægra launaðar en karlar og verður að sjálfsögðu ekki unað við það öllu lengur. Þrátt fyrir allt hafa kvennalaunin þó fært konum þá dýrmætu reynslu að þær hafa alltaf þurft að sýna aðgæslu í meðferð þess fjár sem þær hafa til ráðstöfunar hverju sinni. Það er ekki síst fyrir útsjónarsemi og nýtni kvenna sem þjóðin hefur lifað af tímabil harðinda og kreppu í sögu landsins. Það eru ekki konur sem eiga sök á þeim uppsafnaða halla sem í þessu frv. birtist, eins og í hinum fyrri, og er stöðugt vísað til komandi kynslóða. Konur hafa ekki farið höndum um ríkiskassann hér á landi frekar en víðast annars staðar í heiminum og eiga því ekki sök á því hvernig komið er.
    Brtt. Kvennalistans, þær sem ég mæli hér fyrir, á þskj. 300 eru auðvitað engan veginn tæmandi. Ef vel hefði átt að vera hefði þurft að stokka frv. alveg upp. Við völdum því þá leið að velja örfá mál sem öll snerta mjög líf kvenna. Þau eru dæmigerð fyrir þær

áherslur og þá forgangsröð sem við viljum viðhafa. Eins og konum er tamt tókum við að sjálfsögðu tillit til aðstæðna og því varða tillögurnar aðeins mjög brýn hagsmunamál kvenna sem að sjálfsögðu eru hagsmunamál okkar allra þegar upp er staðið. Þær tillögur sem ég flyt hér hafa því á sér þann hógværðarblæ sem konum er mjög eiginlegur.
    Ég kýs að fara hér í gegnum tillögurnar, ekki eins og þær koma fyrir í röð á þskj. heldur í samhengi miðað við efni þeirra og innihald. Fyrsta brtt. er við 4. gr. frv. Þar er lagt til að við Byggðastofnun komi nýr liður, sem yrði þá númeraður 602. Þar er lagt til að fram komi sérstakt framlag til atvinnuþróunar fyrir konur á landsbyggðinni. Það er ljóst að þegar illa árar og atvinnuleysi eykst bitnar það fyrst og harðast á konum. Í yfirliti vinnumálaskrifstofu félmrn. fyrir nóvember kemur fram að í síðasta mánuði voru skráðir atvinnuleysisdagar 32.000 og fjölgaði um 3.800 frá mánuðinum áður. Alls staðar eru konur í meiri hluta atvinnulausra og svo hefur verið allt síðasta ár. Hæstv. ríkisstjórn hefur samkvæmt stjórnarsáttmálanum í hyggju ,,að framfylgja árangursríkri byggðastefnu sem komi betra jafnvægi á í byggðaþróun í landinu``, eins og þar segir orðrétt, með leyfi forseta. Sömuleiðis leynist enn setningin um sérstakt átak í atvinnumálum kvenna á landsbyggðinni í stjórnarsáttmálanum. Við kvennalistakonur höfum oft minnt á þennan lið og reynt að knýja á um að gert verði sérstakt átak í atvinnumálum kvenna á landsbyggðinni. Hæstv. ríkisstjórn má virða það til vorkunnar nú að þessu sinni að hún virðist loks hafa opnað skilningarvit sín fyrir þessu vandamáli og ætlar að viðurkenna vandamálið með 15 millj. kr. framlagi. En varðandi það framlag sem hér er lagt til að komi til Byggðastofnunar þá tengist það frv. Kvennalistans sem flutt hefur verið í Nd. nú annað þingið í röð. Það gerir ráð fyrir að 20% af framlagi ríkisins til Byggðastofnunar verði varið til þess að byggja upp sérstaka atvinnuþróunardeild fyrir konur á landsbyggðinni. Frv. þetta er nú til umfjöllunar í nefnd og væntum við þess að það verði afgreitt hið allra fyrsta.
    Ég vil benda á í þessu sambandi og við höfum reyndar oft bent á það hér í umræðunni að í nágrannalöndum okkar, sem við berum okkur gjarnan saman við, hafa stjórnvöld áttað sig á því hversu nauðsynlegt það er að hlusta á hugmyndir kvenna og taka tillit til þeirra þegar rætt er um búsetuþróun. Þar eins og hér bitnar aukið atvinnuleysi og skortur á fjölbreytilegum störfum fyrst og fremst á konum á landsbyggðinni. Þær eiga oft ekki annarra kosta völ en að flytja til þéttbýlisstaða í leit að atvinnu. Hefur því víða verið lögð sérstök áhersla á uppbyggingu atvinnu með tilliti til hugmynda og aðstæðna kvenna. Í Noregi eru aðstæður um margt svipaðar og hér. Þar þykir sjálfsagt og nauðsynlegt að eyrnamerkja sérstaklega verulegar fjárhæðir í því skyni að skapa atvinnu fyrir konur í hinum dreifðu byggðum landsins. Eftir sem áður þykir einnig sjálfsagt að konur sæki um lán eða styrki í aðra opinbera sjóði.
    Ég vil taka það fram, virðulegur forseti, að með

því að leggja til 20% hækkun á framlagi til Byggðastofnunar erum við ekki þar með að segja að okkur þyki þær 250 millj. sem eru ætlaðar til Byggðastofnunar nógu há upphæð. Vil ég í því sambandi minna sérstaklega á að hæstv. forsrh. hefur skipað nefnd með fulltrúum allra þingflokka sem hefur það verkefni að móta nýja byggðastefnu. Sú nefnd hefur, eftir því sem ég best veit, unnið mjög gott starf og hefur komið fram með ýmsar hugmyndir og tillögur um það sem gera þyrfti en það starf er auðvitað til lítils ef ekki á að leggja fram neitt fé til að framkvæma þær hugmyndir.
    Ég vil aðeins víkja aftur að Norðurlöndunum því ég tel að hér séum við að ræða mjög brýnt mál. Það hefur sýnt sig og tölur sýna að flótti kvenna af landsbyggðinni er farinn að aukast. Við þurfum að vera vakandi gagnvart þeirri þróun og athuga hvað má gera til þess að snúa henni við að einhverju leyti. Það liggur fyrir könnun sem gerð var í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi á atvinnuháttum dreifbýlisins, og því hvernig best mætti snúa af vegi fólksfækkunar og auðnar og styðja landsbyggðina og byggja þar upp heilbrigt og gróandi mannlíf. Þessi könnun leiddi til þeirrar niðurstöðu að við mótun nýs atvinnulífs og atvinnutækifæra væri þátttaka kvenna höfuðnauðsyn. Áhrifum þeirra yrði að koma að við atvinnurekstur vegna þess að þær hafa aðra sýn og aðrar viðmiðanir en karlar. Þær yrðu að vera með þar sem ákvarðanir væru teknar og vegna vinnuframlags þeirra yrði að taka tillit til hagsmuna þeirra. Ráðamenn í Noregi hafa látið í ljós að við uppbyggingu atvinnu í dreifbýli skuli þessar niðurstöður hafðar að leiðarljósi og ég læt í ljós þá von mína að ráðamönnum hér vitrist þessi sannleikur sem okkur konum finnst reyndar augljós. Ég vil aðeins geta hér líka um norræna ráðstefnu sem haldin var á Íslandi, í Hveragerði, í haust um stöðu kvenna og byggðarþróun á Norðurlöndunum. Þar kom fram að á öllum hinum Norðurlöndunum er mikið lagt upp úr því að rannsaka hvað eina sem tengist þróun og atvinnulífi landsbyggðarinnar og hvaða áhrif ýmsar stjórnvaldsaðgerðir hafa á þessa þætti, svo og félagslegu og mannlegu þættina. Það er kannski ekki síst það sem hefði þurft að vera búið að rannsaka þegar kvóta var úthlutað til smábátaeigenda nú á dögunum.
    Önnur tillaga sem tengist atvinnumálum kvenna er í fimmta liðnum á þskj. 300. Þar hefur hæstv. ríkisstjórn, eins og ég minntist á áðan, viðurkennt vandamálið, þ.e. atvinnuvanda kvenna á landsbyggðinni með því að ætla til þess 15 millj. kr. framlag. Við umræðu um fjárlög á síðasta ári lögðum við þingkonur Kvennalistans til að lagðar yrðu fram 200 millj. kr. til þess að gera sérstakt átak í atvinnumálum kvenna á landsbyggðinni og miðuðum þá við að það væri sama upphæð og þá var áætlað að kostaði að skapa eitt starf í álveri. Við höldum okkur við þessa upphæð núna, 200 millj., gerum ekki á henni hækkun en bætum þessum 15 millj. hæstv. ríkisstjórnar við. Þessi tillaga er lögð hér fram til þess að undirstrika að það er brýnt að gera eitthvað strax. Atvinnuþróunardeild fyrir konur við Byggðastofnun er framtíðarverkefni þar sem þurfa að fara fram rannsóknir og fræðsla en það er mjög brýnt að gert verði átak í atvinnumálum kvenna á landsbyggðinni strax. Það þolir enga bið, ef byggðirnar eiga hreinlega ekki að tæmast. En ég vil taka fram að ég sé ástæðu til þess að fagna því að hæstv. ríkisstjórn skyldi taka tillit til þeirra hugmynda sem fram hafa komið að undanförnu um nauðsyn þess að gera sérstakt átak í atvinnumálum kvenna með þessum 15 millj. en ég get ekki betur séð en að sú upphæð sé lítið meira en viðurkenning á vandamálinu.
    Ég vil þá næst, virðulegur forseti, víkja að fjórða lið á þskj. 300 þar sem lagt er til að við lið 03-391, Þróunarmál og alþjóðleg hjálparstarfsemi, komi viðbót við hjálparstarf Sameinuðu þjóðanna fyrir konur í þróunarlöndunum eða UNIFEM - sjóðinn. Þar sem hæstv. ríkisstjórn leggur til að komi 1,1 millj. höfum við með sömu aðferð og við reiknuðum að við vildum marka 20% af fjárframlagi til Byggðastofnunar til atvinnuuppbyggingar kvenna hér á landi viljað gera þarna þá breytingu að 20% af þeirri upphæð sem fer til alþjóðlegrar hjálparstarfsemi fari sérstaklega í þennan þróunarsjóð kvenna þannig að sú upphæð hækki upp í 9 millj. 816 þús.
    Eitt stærsta verkefnið sem við í hinum svokallaða iðnvædda vestræna heimi stöndum frammi fyrir er hungrið, fátæktin og menntunarskorturinn sem meðsystur okkar og bræður í öðrum heimshlutum búa við. Einhverju sinni lofuðu Íslendingar að þeir ætluðu að láta hrynja mola af allsnægtaborði sínu, tiltekið hlutfall af hverjum hundrað krónum sem við vinnum okkur inn. Mjög breið samstaða var um málið sem var samþykkt hér í formi þáltill. á Alþingi 28. maí 1985. Var samþykkt einróma af þeim hv. þm. sem þá áttu hér sæti sem þá, eins og á öllum öðrum tímum, voru að sjálfsögðu kjörnir fulltrúar þjóðarinnar. Það er því ekki hægt að líta öðruvísi en svo á að mjög breið samstaða sé um þetta mál. Hins vegar þegar kemur að efndum á þessu loforði stöndum við frammi fyrir hörmulegum staðreyndum sem eru til skammar fyrir okkur og hafa vakið tortryggni annarra þjóða um raunverulegan hug okkar gagnvart þróunarlöndunum.
    Kvennalistakonur hafa ævinlega flutt brtt. við fjárlög um hækkun framlaga til þróunarhjálpar. Við reyndum að finna flöt á því hvernig við gætum gert það nú en ákváðum að gera það með sama hætti og í fyrra, að einbeita okkur að hjálp til kvenna. Eins og ég gat um áðan notuðum við sem viðmiðun að konurnar í UNIFEM fái 20% af þeirri heildarupphæð sem fjárlagafrv. gerir ráð fyrir að renni til þróunaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna. Ég vil, með leyfi forseta, lesa hér hluta úr bréfi, sem hv. þm. barst á dögunum frá Íslandsdeild UNIFEM. Það varpar ljósi á stöðu kvenna í þróunarlöndunum og vil ég nota það hér sem rökstuðning fyrir tillögu okkar. Þar segir:
    ,,Konur í þróunarlöndunum sjá um meginhluta þeirra starfa sem þar eru unnin til að framfleyta fjölskyldunni. Í sumum ríkjum er orsaka þess að leita í því að karlar verða að fara til annarra héraða til vinnu

en víða er ástæðan einfaldlega sú að samkvæmt aldagömlum hefðum þykir það lítillækkandi fyrir karla að bera byrðar og sinna akuryrkju eða heimilisstörfum. Þrátt fyrir breytta tíma og minnkandi kynflokkaerjur eru þeir víða enn aldir upp til þess eins að stunda hermennsku. Hin síðari ár hafa áherslur í þróunaraðstoð breyst verulega. Nú er yfirleitt tekið tillit til hefða og menningar þeirra svæða sem njóta aðstoðarinnar. Í kjölfar þessara breyttu áherslna hefur mönnum skilist að lykillinn að góðum árangri liggur oftar en ekki í því að ná til kvennanna á viðkomandi svæði, enda hafa þær vegna stöðu sinnar betri skilning á því hvar hjálp kæmi sér best. Þá má benda á að ríkisoddvitafundur Sameinuðu þjóðanna 1990 lagði áherslu á að staða kvenna á öllum sviðum yrði styrkt því það muni koma börnum heims til góða. UNIFEM, þróunarsjóður Sameinuðu þjóðanna fyrir konur, var stofnaður af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1976. Meginviðfangsefni UNIFEM er að gera konum í þróunarlöndunum kleift að afla sér þekkingar og útvega konum lán, tæki og áhöld til að auðvelda þeim störfin.
Einföld tæki og lítill tilkostnaður hefur oft valdið straumhvörfum í lífi þessara kvenna og fjölskyldna þeirra. Þróunarsjóðurinn er eingöngu myndaður með frjálsum framlögum. Hæstu framlögin koma frá aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna en árið 1988 styrktu alls 103 ríki starfsemi sjóðsins. Einnig eru styrktarfélög starfandi víða um lönd. UNIFEM á Íslandi var stofnað 18. des. 1989 en þá voru liðin tíu ár frá því að alþjóðasamningurinn um afnám alls misréttis gegn konum var samþykktur.``
    Ég vildi með þessu, virðulegi forseti, benda á mikilvægi þess að þróunaraðstoð beinist að því að gera þá einstaklinga sem í þessum löndum búa sjálfbjarga. Það gefur auga leið af því sem hér hefur verið sagt að hjálp til kvenna nýtist mörgum og hver króna sem varið er til hjálpar við konur nýtist líka mjög vel.
    Ég vil einnig nefna annað vandamál sem ekki er oft talað um hér á Íslandi. Það er ljóst að einmitt vegna skorts á fræðslu og heilsugæslu herja ýmsir sjúkdómar á fólk í þróunarlöndunum sem við erum löngu laus við. En sá sjúkdómur sem vofir yfir mannkyninu núna er eyðni sem ég vil aðeins gera að umræðuefni hér. Eyðniplágan herjar nú mjög á þróunarlöndin og á sumum svæðum er svo komið að stór skörð eru höggvin í ákveðna aldurshópa og æ fleiri börn fæðast með eyðniveiruna. Ég tel því lykilatriði að reynt verði að ná til kvenna og þær fræddar og styrktar til þess að standa á eigin fótum.
    Þá vil ég næst víkja að 6. lið á þskj. 300. Þar er lagt til að við liðinn Félagsmál, ýmis starfsemi verði hækkuð upphæð til Kvennaathvarfs. Fjárlagafrv. gerir ráð fyrir 10 millj. 210 þús. kr., en við gerum tillögu um að sú upphæð verði hækkuð upp í 14,1 millj. kr. með tilliti til þeirrar beiðni sem hv. fjvn. hefur borist frá Kvennaathvarfinu. Ég vil aðeins rifja upp að Kvennaathvarfið í Reykjavík var stofnað 6. des. 1982 fyrir konur og börn þeirra sem flýja þurftu heimili sín vegna andlegs og/eða líkamlegs ofbeldis. Því miður

hefur komið í ljós að tilvera Kvennaathvarfsins er nauðsynleg og hefur þörfin fyrir það farið vaxandi.
    Um þetta leyti í fyrra höfðu 156 konur leitað til Kvennaathvarfsins með börn sín. Nú er þessi tala komin upp í 168 og dvalardagar fyrstu tíu mánuði ársins voru 865. Þess má geta að um 30% kvennanna komu frá byggðarlögum utan höfuðborgarsvæðisins.
    Það er ljóst að ofbeldi fer vaxandi og það er einn svartasti bletturinn á þjóðfélagi okkar. Árið 1989 hringdu 200 manns til Kvennaathvarfsins til að biðja um upplýsingar og aðstoð. Fólk spyr um sifjaspell, kvennaráðgjöf og allt mögulegt. Flestir hringja bara til að fá ráð og huggun. Á þessum tíma í fyrra, þegar við ræddum um fjárlagafrv., höfðu 794 hringt í Kvennaathvarfið á móti 200 árið áður og segir það sína sögu. En sú saga sem okkur birtist nú er enn hörmulegri því að símtölin eru nú orðin 1610 þrátt fyrir aukna þjónustu með tilkomu Stígamóta sem stofnuð voru sl. vor. Það er ljóst að hér er um að ræða alvarlegt vandamál sem hefur verið dulið í þjóðfélaginu. Það er ljóst að á erfiðum tímum í efnahags - og atvinnulífi má samkvæmt reynslunni búast við að ofbeldi færist enn í vöxt.
    Sá styrkur sem samtök um Kvennaathvarf sækja um til ríkisins nemur 70% af rekstrarkostnaði þeirra. Afgangurinn kemur frá sveitarfélögum eða frjálsum framlögum einstaklinga. Sá styrkur sem sótt er um til opinberra aðila er einungis til rekstursins, það eru laun starfskvenna, launatengd gjöld, matur, hiti, rafmagn, sími og annað sem til dagslegs reskturs heimilisins heyrir. Dvalarkonur sjá sjálfar um húshaldið, um matseld, þvotta og þrif. Hús athvarfsins er keypt fyrir frjáls framlög almennings, fyrirtækja og félagasamtaka og sama gildir um allt viðhald hússins sem byggt var skömmu eftir aldamót. Opinberir aðilar hafa ekki lagt fram eina einustu krónu til þess hluta rekstursins sem heyrir til reksturs húsnæðis eða innkaupa og eðlilegs viðhalds og endurnýjunar húsbúnaðar. Í beiðni Kvennaathvarfsins nú kemur fram að þörfin fyrir viðhald og umbætur eykst. Næstum árlega þegar gjafafé þverr stendur Kvennaathvarfið frammi fyrir lokun vegna skorts á rekstrarfé. Því er mjög brýnt að séð verði til þess að rekstur þess verði tryggður til frambúðar.
    Ég vil vekja athygli á því að það er einkennandi fyrir allt starf Kvennaathvarfsins að þar eru gerðar raunhæfar áætlanir sem standast. Sú beiðni sem nú liggur frammi frá Kvennaathvarfi hljóðar upp á 70% af rekstrarkostnaði, eins og ég gat um áðan, auk 2 millj. kr. sem þær höfðu gert sér vonir um að fá á fjáraukalögum sem flutt voru hér á dögunum en sú upphæð var nauðsynleg til að endar næðu saman þetta árið.
    Þar sem við vitum að allar áætlanir og beiðnir Kvennaathvarfsins hafa verið vel ígrundaðar og sniðnar að því allra nauðsynlegasta til að halda þessu mikilvæga starfi gangandi, þá skora ég á hv. þm. --- og harma auðvitað að þeir skuli ekki vera hér fleiri --- að skoða hug sinn vel þegar þessi tillaga kemur til atkvæðagreiðslu. Vænti ég þess að hv. þm. sjái sér fært

að styðja hana þar sem, eins og fram hefur komið í máli mínu, þetta er fyrir algerum frumþörfum þessarar stofnunar.
    Ég vil þá næst víkja að 3. lið brtt. á þskj. 300. Ég minntist í upphafi máls míns á hinn mikilvæga þátt kvenna í varðveislu menningarinnar. Við kvennalistakonur hefðum svo sannarlega getað hugsað okkur að flytja brtt. um hækkuð framlög til menningarmála og höfum oftast áður lagt fram brtt. um tvöföldun á framlagi til þessa málaflokks. Það hefðum við að sjálfsögðu gjarnan viljað nú og hefði ekki veitt af miðað við þá útreið sem menningarmálin fá í frv. og þá óvissu sem ríkir t.d. varðandi áframhaldandi starf Íslensku óperunnar. Í samræmi við það sem ég hef áður sagt ákváðum við þó að fara aðra leið nú. Við leggjum áherslu á einn þátt menningarinnar sem oft er rætt um að þurfi að efla en manni kemur í hug að það sé helst í hátíðarræðum. Mikið er rætt um að það þurfi að efla verkmenntun þjóðarinnar. Verk - og listgreinar hafa algerlega setið á hakanum í skólakerfinu eins og dæmin sanna í skýrslu þeirri sem við kvennalistakonur báðum um á þessu kjörtímabili. Þar kemur í ljós að það er víða pottur brotinn og þessi kennsla látin sitja á hakanum. En nú er um það rætt að auka kennslu í verk - og listgreinum um leið og skóladagur yngstu grunnskólabarnanna verður lengdur.
    Í Heimilisiðnaðarskóla Íslands er starfandi fólk sem heldur námskeið í því skyni að kenna öðrum gömul íslensk vinnubrögð og þróa þau áfram og er með því að varðveita þennan mikilvæga og dýrmæta þátt menningar okkar. Vegna fjárskorts hefur skólinn ekki getað staðið fyrir slíkum námskeiðum utan höfuðborgarsvæðisins en það er ljóst að úti um landið býr margt fólk sem enn þá kann gamla íslenska handbragðið, kann að vinna úr hráefni sem lítt eða ekki er notað lengur. Fólk sem t.d. kann að vinna íslensku ullina og elta steinbítsroð, svo að dæmi séu tekin. Að undanförnu eru menn farnir að nýta þorskroð í æ ríkara mæli í tískufatnað. Trúi ég að við gætum átt möguleika á að skapa okkur atvinnu með því að nýta það hráefni sem við höfum svo mikið af.
    Aðalmarkmiðið með tillögu okkar um heimilisiðnaðarráðgjafa er þó fyrst og fremst að stuðla að varðveislu þessa mikilvæga þáttar í menningu okkar en við vitum að þróun og varðveisla verkmenningarinnar leiðir að öllum líkindum til þess að einhverjir muni geta skapað sér atvinnu, ekki síst konur í dreifðum byggðum landsins þar sem atvinnulíf er fábreytt. Vil ég minna á tillögu sem varaþingkona mín, Snjólaug Guðmundsdóttir, flutti fyrr í haust um að stofnað verði embætti heimilisiðnaðarráðgjafa. Þar er gert ráð fyrir að á vegum hins opinbera starfi heimilisiðnaðarráðgjafi sem hafi það verkefni að fara um landið, kanna stöðu heimilisiðnaðarins, halda námskeið og aðstoða fólk við gerð og hönnun minjagripa svo og markaðssetningu þeirra.
    Það er margt sem við höfum vanrækt í menningu okkar en við vildum með þessari tillögu leggja sérstaka áherslu á þennan þátt. Ég vil benda á að við

höfum gert margt alrangt að mínu mati varðandi íslenska verkmennt. Ég get ekki séð að það sé lausn á vanda ullariðnaðarins að flytja stærstu verksmiðjuna stöðugt milli Norður - og Suðurlands. Það eru aðrir þættir sem þarf að taka á. Það eru grundvallaratriði sem snerta vinnslu hráefnisins sjálfs. Það er einmitt á þeim vettvangi sem handverksfólk, sem kann okkar gömlu vinnubrögð, og þau vinnubrögð þurfa sem flestir að hafa tækifæri til að læra, það er á þessum vettvangi sem það fólk sem kann þessi vinnubrögð getur hjálpað okkur við að halda þessum þætti menningarinnar hér með okkur. En það verður fyrst og síðast menningin sem ræður hvort okkur tekst að halda sjálfstæði okkar sem þjóð, hvort sem er á sviði verkmenntunar eða annarrar listastarfsemi.
    Virðulegur forseti. Síðasta brtt. á þskj. 300 sem ég mæli hér fyrir varðar Háskóla Íslands og er 2. liðurinn. Ég vil aðeins hafa smáformála að þeirri tillögu. Með aukinni menntun kvenna gefur auga leið að fleiri og fleiri konur hasla sér völl á vettvangi vísindarannsókna af öllu tagi. Eitt það ánægjulegasta, og það sem víða um lönd eru bundnar miklar vonir við, er það nýja og ferska sem konur bera með sér inn á svið vísindanna.
    Á undanförnum árum hefur verið mikil gróska í svokölluðum kvennarannsóknum víða um lönd og vísir að slíkri stofnun hefur verið starfandi við Háskóla Íslands undanfarin ár. Sú viðurkenning sem vísindakonum við Háskóla Íslands hefur verið sýnd með smástyrk á fjárlögum undanfarin ár hefur verið afar hvetjandi fyrir þær íslensku konur sem að kvennarannsóknum vinna og gert þeim kleift að koma með ný viðhorf og viðfangsefni inn í vísindin. Eru bundnar miklar vonir við framlag kvenna sem hafa með rannsóknum sínum sýnt að þær hafa aðra sýn á viðfangsefnin en hingað til hefur þekkst og því ástæða til að ætla að rannsóknir þeirra leiði okkur inn á áður ókunnug svið. Það munu hafa orðið mistök í sambandi við beiðni þeirra sem átti að berast ásamt beiðnum Háskóla Íslands til hv. fjvn. en Rannsóknastofa í kvennafræðum við Háskóla Íslands var formlega stofnuð 7. mars sl. með reglugerð frá menntmrn.
    Mig langar, til að skýra það hvers vegna beiðni þeirra kom ekki fram á tilsettum tíma, að lesa bréf sem öllum fulltrúum í fjvn. hefur verið sent vegna þessa máls og mun það skýra hvers vegna ég flyt þessa tillögu hér um að framlag til sérstofnana Háskólans verði hækkað um þau 400 þús. kr. sem þær fara fram á. En hér segir, með leyfi forseta:
    ,,Við undirritaðar sem sitjum í stjórn Rannsóknastofu í kvennafræðum við Háskóla Íslands viljum fara þess á leit við fjvn. Alþingis að veittar verði 400 þús. kr. til reksturs stofnunar á fjárlögum fyrir árið 1991.
    Eins og fram kemur í hjálögðu bréfi til menntmrn. frá 16. júlí sl. var fyrsta stjórn stofunnar skipuð af háskólaráði þann 14. júní sl. Þá þegar var of seint að koma fjárbeiðnum inn í fjárlagabeiðni Háskóla Íslands fyrir árið 1991. Í samráði við fjármálastjóra Háskólans, Gunnlaug Jónsson, var því ákveðið að skrifa menntmrn. beint í von um fjárveitingu til stofunnar

þannig að hægt yrði að koma lágmarksrekstri af stað. Ráðuneytið afgreiddi þessa beiðni sem og aðrar á þann hátt að veitt var heildarfjárhæð á fjárlögum til allra stofnana Háskólans. Til þess var síðan ætlast að háskólayfirvöld ráðstöfuðu fénu.
    Í samtali við rektor Háskóla Íslands hefur hins vegar komið fram að hann telur ekki mögulegt að verða við beiðni okkar þar sem hún hafi borist of seint og fénu sé þegar ráðstafað. Því snúum við okkur til fjvn. Alþingis í von um að enn sé svigrúm til að leysa þetta mál. Við viljum taka fram að þrátt fyrir fjárskort hefur stjórnin þegar hafið störf. Haldnir hafa verið tíu stjórnarfundir þar sem unnið hefur verið að áætlun um víðtæka starfsemi á vegum stofunnar. Höfum við í hyggju að halda ráðstefnu nk. haust um kvennarannsóknir á Íslandi og í kjölfar hennar vonumst við til að geta gefið erindin út. Teljum við að mikill fengur verði að slíku riti, bæði fyrir kennslu í kvennafræðum og ekki síður til að stuðla að samstarfi og upplýsingastreymi milli hinna ýmsu fræðisviða. Einnig vinnum við að undirbúningi fyrir gagnasafn um kvennarannsóknir á Íslandi. Er það verkefni knýjandi þar sem okkur berast margar fyrirspurnir, sérstaklega erlendis frá, um stöðu þeirra. Sem stendur vinnum við að því að skapa betri aðstöðu til fræðistarfa.
    Nýverið barst okkur gjöf frá norska vísindaráðinu, NAVF, tímaritið ,,Litt om kvinneforskning`` frá upphafi auk ýmissa annarra rita um kvennafræði. Vonumst við til að gera verulegt átak á næsta ári við að byggja upp tímarita - og bókakost í kvennafræðum.
    Eins og fram kemur í fjárhagsáætluninni er sú fjárhæð sem sótt er um ætluð sem stofnkostnaður fyrir skrifstofuaðstöðu auk þess að greiða laun starfsmanns í 25% starfi. Teljum við þetta lágmark til að koma starfseminni af stað.``
    Ég tel, hæstv. forseti, að þetta skýri beiðnina. Þetta bréf var sent til hv. fjvn. 6. des. sl. og er eins og ég sagði nokkuð seint fram komið vegna þess að það hefur fallið einhvers staðar á milli á ferð sinni frá menntmrn. og til Háskóla Íslands. Vona ég að hv. þm. taki það til skoðunar og verði reiðubúnir til að styðja þessa hæversku beiðni um 400 þús. kr. framlag til þessarar nýju rannsóknastofu Háskólans. Legg ég áherslu á mikilvægi þess að einmitt þegar verið er að stofna slíka stofu þá er auðvitað vonlaust að gera það án þess að til komi einhverjir aurar, en ég tel að hér sé einmitt um aura að ræða.
    Virðulegi forseti. Þær brtt. sem ég hef nú mælt fyrir fyrir hönd þingflokks Kvennalistans eru engan veginn tæmandi eins og ég gat um í upphafi máls míns. Þetta eru hins vegar dæmigerðar tillögur fyrir þann málstað og þær áherslur sem við leggjum hér á Alþingi, þ.e. að bæta stöðu kvenna og barna og þeirra sem minnst mega sín og á ég þar við konur og börn í þróunarlöndunum. Ég vil einnig geta þess hér að við flytjum ekki sérstakt tekjuöflunarfrumvarp með þessum tillögum nú en það höfum við gert áður hér á hv. Alþingi. Tel ég ekki ástæðu til að fara að tíunda þær, en ítreka það enn og aftur að þessar tillögur eru dæmi um stefnu okkar. Vona ég að ég megi vænta góðs

stuðnings hv. þm. við þær.