Danfríður Skarphéðinsdóttir :
Virðulegur forseti. Það er brýnt að taka á atvinnuvanda kvenna úti á landsbyggðinni. Við kvennalistakonur höfum lagt til með frv. í Nd. Alþingis að við Byggðastofnun verði stofnuð sérstök atvinnuþróunardeild fyrir konur í því skyni að treysta búsetu kvenna á landsbyggðinni. Ljóst er að það eru ekki hvað síst konur sem flytja af landsbyggðinni um þessar mundir í atvinnuleit. Eins og hv. þm. er kunnugt um er skráð atvinnuleysi kvenna mjög mikið eða um það bil helmingi meira en karla í öllum landshlutum. Gæti það átt eftir að aukast enn ef ekki verður að gert. Ég tók eftir því að hv. 2. þm. Vestf. hefur greinilega ekki, þó hann hafi sýnt örlítinn skilning á þessum vanda, fylgst með umræðunni. Með þessari tillögu er verið að leggja til að réttur verði hagur þeirra verst stöddu í atvinnumálum landsbyggðarinnar. Ekki er verið að leggja til neinn aðskilnað kynjanna á vinnustöðum, eins og hann hafði greinilega misskilið.
Ég mælti fyrir þessari brtt. í gær. Málið snýst um það að móta stefnu í atvinnumálum kvenna til þess að þær geti áfram búið á landsbyggðinni eins og þeir karlar sem þar búa. Hv. þm. ætti að vera ljóst að það er ekki síst á herðum kvenna sem byggð úti um landið hvílir. Ég segi því já.