Fjárlög 1991
Föstudaginn 14. desember 1990


     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason) :
    Virðulegi forseti. Fyrir hönd þingmanna Norðurl. e. hef ég ritað hv. fjvn. bréf þar sem ég óskaði eftir því að þessi fjárlagaliður yrði tekinn til skoðunar með það í huga að sú fjárveiting sem frv. gerir ráð fyrir dugar aðeins til þess að greiða skuld vegna framkvæmda ársins í ár. Ef henni verður ekki breytt stöðvast framkvæmdir við þennan skóla sem nú þegar er yfirsetinn. Væri það mjög slæmt. Ég vænti þess að fjvn. taki málið til athugunar milli 2. og 3. umr. og segi því já við þessa umræðu.