Ólafur Þ. Þórðarson :
Herra forseti. Það er mjög bagalegt þegar gera þarf grein fyrir afstöðu manna heima í héraði, hverjir hafa stutt fjárveitingar til þess eða hins, að ekki skuli ávallt koma fram hvernig menn greiða atkvæði. Það hefur komið fram að stjórnarmaður í þingflokki Sjálfstfl. vill hækkun á einum lið við fjárlög og jafnframt fella nokkra aðra. Hins vegar þykir mér nauðsyn ærin að það komi fram varðandi hina liðina sem um er að ræða og eru fjárveitingar heim í hérað hvort menn styðja eða hvort menn sitja hjá. Það er nefnilega lítil karlmennska að minna fjárveitinganefndarmenn á að hækka þetta eða hitt úti í nefnd við vinnu sína en svo þegar kemur að því að greiða atkvæði í þinginu, þá velja menn þá einu afstöðu að sitja hjá. Ég segi já og vil hafa það á hreinu hvað ég styð og hvað ég styð ekki.