Brottfall laga og lagaákvæða
Föstudaginn 14. desember 1990


     Frsm. allshn. (Guðmundur Ágústsson) :
    Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 305 um frv. til laga um brottfall laga og lagaákvæða. Þarna er um að ræða lagahreinsun og voru menn í allshn. sammála um að afgreiða málið eins og það kom frá hv. Nd.
    Allshn. leggur því til að frv. verði samþykkt og afgreitt sem lög.