Danfríður Skarphéðinsdóttir :
Virðulegur forseti. Ég vil aðeins með örfáum orðum minna á að þingkonur Kvennalistans í Nd. fluttu frv. um þetta sama efni á síðasta þingi, skömmu áður en dómsmrh. lagði fram það frv. sem hér er til afgreiðslu óbreytt. Það hefur reyndar breyst í meðförum nefndarinnar eins og fram kom í máli hv. 5. þm. Reykv. En í því frv. sem kvennalistakonur í Nd. lögðu fram voru aðeins aðrar áherslur en markmiðið er það sama, að veita þeim efnaminni aðstoð til þess að fá lögfræðilega þjónustu í því skyni að ná rétti sínum ef á þeim er brotið.
Ég fagna því að samstaða skyldi takast um það í nefndinni að Alþingi sjálft taki ákvörðun um þau tekjumörk sem skulu ráða um það hvaða einstaklingar eiga rétt á þessari aðstoð. Hér á hv. Alþingi gætir mikillar tilhneigingar til þess að framselja ákvarðanir um allt of mörg atriði til framkvæmdarvaldsins og ég held að þeir sem hér starfa við löggjöfina ættu að hafa það í huga í öllum sínum störfum. Hér skulu lögin sett og ákvarðanir teknar þó að framkvæmd þeirra sé síðan í höndum framkvæmdarvaldsins.
Ég var ein af þeim sem töldu að sú upphæð sem hér er miðað við, þ.e. 850 þús. í árstekjur, væri of lág því þó að þessi upphæð sé nokkru hærri en í Danmörku, eins og fram kom í máli hv. 5. þm. Reykv. sem hér mælti fyrir nál., þá má minna á það að í Danmörku er framfærslukostnaður mun lægri en hér. Í því frv. sem kvennalistakonur lögðu fram í fyrra var lagt til að miðað yrði við tvöföld skattleysismörk.
Ég tel þetta mál samt mjög mikilvægt fyrir hina efnaminni í þjóðfélaginu og sé því ekki ástæðu til þess að standa gegn því enda getur Alþingi að sjálfsögðu ákveðið að breyta þessari upphæð þegar í ljós kemur að hún reynist of lág.
Ég fagna einnig því nýja fyrirkomulagi sem fram kemur varðandi gjafsókn, að hér er skipuð sérstök nefnd sem mótar reglur og gefur umsagnir en í störfum nefndarinnar kom fram að það hefur verið nokkuð á reiki hverjir fá gjafsókn og hverjir ekki. Það vald hefur verið í höndum ráðherra eingöngu, en nú mun hann alla vega fá umsagnir og þarf leyfi fyrir ákveðnum tilvikum til gjafsóknar.
Ég vildi að lokum láta koma fram þá skoðun mína hér að ég tel málið mjög mikilvægt og sé ekki ástæðu til þess að standa gegn því á þeim forsendum að ég telji tekjumörkin of lág. Það kemur í ljós og þá verður Alþingi að taka á því, en ég ítreka það að ég fagna því að samstaða skyldi nást um að færa valdið um ákvörðun tekjumarka frá hæstv. dómsmrh. til Alþingis.