Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson) :
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. fyrir þann vitnisburð sem hann kom með frá Eiríki Tómassyni, þar sem kemur fram að Eiríkur Tómasson staðfestir það sem ég hef sagt, að þeir lögfræðingar sem til voru kvaddir sáu ekki að neitt athugavert væri við þessa bráðabirgðalagasetningu og töldu hana standast gagnvart stjórnarskránni.
Ég hef nefnt það hér í sambandi við fyrirspurn í gær að samtals telst mér til að leitað hafi verið til tíu lögfræðinga. Þar af voru sjö lögfræðingar innan Stjórnarráðsins og þrír utan. Þeir lögfræðingar sem eru innan Stjórnarráðsins voru allan tímann meira eða minna með í ráðum að sjálfsögðu. ( FrS: Var ríkislögmaður einn af þeim?) Það var að sjálfsögðu rætt við ríkislögmann líka, sérstaklega eftir að ljóst var að málið færi fyrir Félagsdóm. ( FrS: Á tímabilinu 1. febr. til 1. júlí?) Ég skal ekki segja hvort hafist var handa 1. febr. en ég bið hv. þm. að minnast þess að m.a. á launaskrifstofu fjmrn., sem fjallar stöðugt um þessi mál, eru vitanlega lögfræðingar. Ég bið hv. þm. að minnast þess að lögfræðingur eins og Þorsteinn Geirsson sem hefur verið í launamálum um margra ára bil var að sjálfsögðu allan tímann meira eða minna með í ráðum og er í samninganefnd ríkisins. Þessir lögfræðingar voru að sjálfsögðu allan tímann með í ráðum. Hv. lögfræðingur má ekki halda að við verkfræðingarnir höfum einir og sér samið þessi bráðabirgðalög, þvert á móti voru þau samin af lögfræðingum í Stjórnarráðinu.
Ég vil jafnframt taka það skýrt fram hér þannig að það liggi ljóst fyrir, sem reyndar kom fram og ég met það við hv. þm., að ég hef aldrei nokkurn tímann nefnt að þingi yrði slitið --- ég bið hv. þm. að hlusta --- að bráðabirgðalögunum föllnum og ný lög sett. Ég hef aldrei sagt það. Þegar fréttamenn spurðu mig að því hér hvað ég mundi gera ef bráðabirgðalögin féllu þá sagði ég að ég mundi leggja til að þing yrði rofið og efnt til kosninga og ríkisstjórnin segði af sér. Það var þetta sem ég sagði. Ég get upplýst það að föstudaginn 30. nóv., hygg ég að það hafi verið, ræddi ég við hæstv. utanrrh. og reyndar hæstv. fjmrh. og þá lá þetta algjörlega hreint fyrir. Ef einhver misskilningur hefur komið fram í orðum hæstv. utanrrh., ég hef að vísu ekki farið nákvæmlega yfir það, er það eitthvað sem er ekki frá mér komið. Því mér var að sjálfsögðu ljóst um leið að sú leið sem hv. þm. gerir hér að umræðuefni kom vitanlega ekki til greina. Það þurfti jafnvel engan lögfræðing til að segja mér þau sannindi. Ég tek því út af fyrir sig enga ábyrgð á því ef einhver misskilningur hefur komið fram hjá hæstv. utanrrh., hann er því miður ekki staddur á landinu, og ætla ég ekki að gera það meira að umræðuefni.
Ég ætla ekki að ræða hér almennt um efnahagsmálin. Staðreyndin er sú að hrakspár hv. sjálfstæðismanna hafa hljómað í eyrum þjóðarinnar allt frá haustmánuðum 1988 og sem betur fer hafa þær aldrei reynst sannar og munu ekki reynast sannar nú heldur. Þvert á móti hefur þessi ríkisstjórn tamið sér að fylgjast mjög vandlega með allri þeirri þróun sem á sér stað, bæði á peningamarkaðinum, í verðlagsmálum og fjölmörgu fleiru, er í stöðugum viðræðum við aðila vinnumarkaðarins og hefur að þeirra eigin dómi, hvað eftir annað upplýst, staðið að öllu leyti við sinn hlut í þessari þjóðarsátt og reyndar gengið töluvert lengra. M.a. hefur komið fram í ítarlegri athugun að verðlagshækkanir á opinberum gjöldum hafa verið töluvert minni en meðalverðlagshækkun á þjóðarsáttartímanum og miklu minni en verðhækkanir, t.d. í verslun og viðskiptum í landinu. Ég vil sömuleiðis benda á það, sem alls ekki var um samið í febrúar, að ríkisstjórnin féllst á að verja enn þá verulegu fjármagni til þess að ekki yrði farið fram úr rauðu strikunum í september. Um það var samið í ágúst og alls ekki til þess ætlast þegar upphaflega var gengið frá samningum á milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar. Það eru satt að segja furðuleg öfugmæli að hlusta á það að ríkisstjórnin hafi ekki staðið við sinn þátt að þjóðarsáttinni og í þeirri viðleitni að hún stæðist. Ég vísa því algjörlega á bug.
Ef hv. þm. þykir ég hafi verið sigri hrósandi held ég að það sé út af fyrir sig misskilningur. Ég held ég hafi nefnt það við einhvern fjölmiðil að ég kenndi í brjósti um forustu Sjálfstfl. Ég á kannski helst að lýsa því með því að segja að ef ég hefði staðið frammi fyrir alþjóð og lýst því yfir að allur Framsfl. stæði mér að baki í að greiða atkvæði gegn eða með einhverju frv. og síðan brygðust tveir eða þrír, þá mundi ég kenna í brjósti um sjálfan mig, svo sannarlega. Ég vona að það eigi ekki eftir að gerast. Ég vona að þetta skýri mín orð. Ég geri ekki út af fyrir sig mikinn mun á því hvort bráðabirgðalögin fari í gegn með einu atkvæði, tveimur, þremur eða fjórum. Þau fóru í gegn og það er vitanlega aðalatriðið.