Þorsteinn Pálsson :
Herra forseti. Ræða hv. 1. þm. Norðurl. v. bar mjög glögg merki þeirrar siðferðisblindu sem liggur að baki ákvörðunum hæstv. ríkisstjórnar og ríkisstjórnarflokkanna. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um þá útúrsnúninga sem hér voru viðhafðir af hans hálfu með tilvitnunum í lagasetningu frá 1983 og aðeins að minna á að mörgum sinnum hafa verið sett lög sem hafa breytt ákvæðum um útreikning verðbóta á laun. Ef ég man rétt gerðist það með þeim hætti vorið 1983 að numin voru úr gildi lagaákvæði þess efnis hvernig standa skyldi að verðbótaútreikningi launa. Það var með öðrum orðum ákveðið í tíð þeirrar ríkisstjórnar, sem sat að völdum fram til ársins 1983, með lögum hvernig standa skyldi að útgreiðslu verðbóta á þeim tíma og samningsákvæðum hafði af þeirri ríkisstjórn verið ýtt til hliðar með lagaboði.
Þessi ræða hv. þm., formanns fjh. - og viðskn. og formanns þingflokks framsóknarmanna ber á hinn bóginn mjög glögg merki, og einmitt þessir útúrsnúningar, um þá siðferðisblindu sem stjórnarliðar eru slegnir í þessu efni.
Hér er um það að ræða að það er verið að fjalla um kjarasamninga og ógildingu þeirra. Í fyrsta lagi kjarasamninga sem ráðherrar núv. ríkisstjórnar skrifuðu undir eigin hendi. Það er verið að fjalla um það að hæstv. ríkisstjórn tók ákvörðun um að hætta framkvæmd þeirra samninga með einhliða aðgerð sem öllum var ljóst að bryti í bága við gildandi réttarreglur á samningasviði. Og fyrir Félagsdómi hlaut hæstv. ríkisstjórn dóm. Aðgerðir hennar voru dæmdar ólögmætar fyrir Félagsdómi.
Það er afar fróðlegt að heyra hv. 1. þm. Norðurl. v., formann þingflokks framsóknarmanna, verja slíkar aðgerðir. Það eru engin dæmi um það að aðilar að kjarasamningi hafi gert tilraun til þess að brjóta hann með þessum hætti sem hæstv. ríkisstjórn var dæmd fyrir í Félagsdómi á miðju þessu ári. Og þegar sá dómur lá fyrir þótti hæstv. ríkisstjórn rétt að setja bráðabirgðalög gegn þeirri dómsniðurstöðu. Það er þetta sem lýsir einstakri siðferðisblindu, lýsir virðingarleysi fyrir lögum og rétti og gildandi grundvallarrétti á samningssviði og virðingarleysi fyrir stjórnskipunarreglum lýðveldisins.
Flestir þeir sem kvatt hafa sér hljóðs um þetta efni hafa borið fram mjög harða gagnrýni á hæstv. ríkisstjórn einmitt vegna þessa. Það eru ekki bara andstæðingar ríkisstjórnarflokkanna sem gagnrýna þetta. Það eru virtir vísindamenn í Háskólanum. Prófessorar við lagadeild Háskólans komast svo að orði að þetta mál allt sýni svo alvarlegar veilur í stjórnskipuninni að þar verði að ráða bót á. Prófessorar við lagadeild Háskólans segja að ríkisstjórnin hafi gengið þann veg fram í þessu máli að þjóðin hefði þurft að setja traust sitt á forseta Íslands til þess að koma í veg fyrir alvarleg brot gegn stjórnarskránni. Og einn af ráðgjöfum hæstv. ríkisstjórnar og máttarstólpum í Framsfl. hefur sagt að aðferðir ríkisstjórnarinnar í þessu máli séu gróft dæmi um siðferðisbrest í stjórnmálum. Innan úr
innsta hring í Framsfl. koma þau ummæli að hér sé um að ræða gróft brot á siðferðisreglum.
Þingmenn og ráðherrar stjórnarflokkanna hlæja að þessum ummælum. Hvers vegna? Vegna þess að þeir bera enga virðingu fyrir lögum og rétti. Málavextir allir, málflutningur þeirra hér á Alþingi ber vott um það að valdið eitt gildir í þessu efni. Réttarstaða einstaklinga og félaga er vanvirt á alveg einstakan hátt sem engin dæmi eru til um frá fyrri tíma. Engin ríkisstjórn hefur fengið gagnrýni af því tagi sem komið hefur fram í þessu máli. Það hefur oft staðið styrr um lagasetningu sem lotið hefur að kjarasamningum. En engin ríkisstjórn hefur fengið gagnrýni af því tagi sem hér hefur verið borin fram vegna þess að fyrr hafa menn ekki vanvirt grundvallaratriði í íslenskri þjóðfélagsgerð, bæði að því er varðar lög og rétt og almennt siðgæði sem er grundvöllur menningarlegs og lýðræðislegs þjóðfélags. Það er hv. 1. þm. Norðurl. v. ekki til sóma að gera gys að þessum gildum sem sérhvert menningarþjóðfélag þarf að byggja á og honum til háðungar og flokki hans til smánar hvernig hann ræddi um þau efni hér og á hvern veg flokkur hans og sú ríkisstjórn sem hann styður hefur staðið að þessu máli.