Frsm. meiri hl. fjh. - og viðskn. (Páll Pétursson) :
Herra forseti. Ég má til að bera af mér sakir. Ef við erum haldnir siðferðisblindu nú höfum við verið siðferðilega steinblindir 1983. Því að sú lagasetning var náttúrlega miklu, miklu grófari en sú sem hér er til umræðu. Ég var hvorki blindur þá eða nú og fór eftir hinu besta siðferði og var að vinna nauðsynleg verk. Það getur skeð að augu þeirra í forustu Sjálfstfl. séu nú haldin siðferðisblindu.
Það eru hreinar rangfærslur hjá hv. 1. þm. Suðurl. að eitthvað minna hafi gengið á kjarasamninga í bráðabirgðalögunum 1983 en nú. Ég endurtek, með leyfi forseta ákvæði úr 1. gr.: ,,Sama máli gegnir um ákvæði í kjarasamningum um greiðslu verðbóta á laun á þessu tímabili.`` Mér þykir við hæfi að vitna aftur til nál. meiri hl. nefndarinnar á þskj. 233: ,,Jafnframt er rétt að vekja sérstaka athygli á þeim útbreidda misskilningi að bráðabirgðalögin hafi numið úr gildi niðurstöður Félagsdóms. Þeim niðurstöðum er í engu raskað. Eftir að niðurstöður Félagsdóms lágu fyrir var hins vegar hluta samnings BHMR og fjmrh. breytt með lögum þannig að greiðslur féllu niður frá 1. sept. 1990. Það þýðir hins vegar ekki að niðurstöðum Félagsdóms sé breytt heldur þeirri réttarheimild sem
greiðsluskylda studdist við.``
Mér þykir ágætt að hafa fengið tækifæri til þess að lengja þessa umræðu örlítið því að pólitískt séð og sem stjórnarsinna þykir mér þeim mun betra sem sjálfstæðismenn segja meira í þessu máli.