Launamál
Föstudaginn 14. desember 1990


     Þorsteinn Pálsson :
    Herra forseti. Hv. 1. þm. Norðurl. v. mótmælti því að Framsfl. væri fyrst nú sleginn siðferðisblindu. Hafi nokkru sinni falist í mínu máli viðurkenning á því að svo hafi ekki verið ástatt um Framsfl. fyrr á tíma skal ég draga það til baka og viðurkenna það fyllilega að hann hafi frá upphafi vega verið sleginn þeirri blindu og augljóst að meðan hv. 1. þm. Norðurl. v. er þar í forustu er lítil von til þess að þar verði bót á.