Veiting ríkisborgararéttar
Föstudaginn 14. desember 1990


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar sem flutt er á þskj. 319. Í 1. gr. frv. eru talin upp nöfn 53 manna sem sótt hafa um íslenskan ríkisborgararétt. Í 2. gr. eru sömu ákvæði um nafnbreytingar og gilt hafa síðustu árin.
    Ég legg til, hæstv. forseti, að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. allshn.