Endurreisnar- og þróunarbanki Evrópu
Föstudaginn 14. desember 1990


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Á þskj. 314 liggur fyrir álit fjh. - og viðskn. um þetta þingmál, undirritað af Páli Péturssyni, Friðriki Sophussyni, Ragnari Arnalds og Þórhildi Þorleifsdóttur. Aðrir nefndarmenn voru fjarstaddir en meiri hl., þ.e. þeir sem mættir voru á fundi, leggur til að frv. verði samþykkt.
    Hér er um að ræða frv. sem er flutt í tengslum við till. til þál. um heimild til fullgildingar samnings um stofnun Endurreisnar - og þróunarbanka Evrópu, en sá samningur var gerður í París 29. maí 1990.