Veiðiheimildir smábáta
Mánudaginn 17. desember 1990


     Halldór Blöndal (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Það var búið að boða fund í fjh.- og viðskn. Ed. kl. 4 og kveðja menn til utan úr bæ til þess að sitja þann fund með nefndarmönnum. Ég vil vænta þess þá að séð verði um að þeim fundi verði frestað, það mál sem þar er á dagskrá frestist þá um sinn og nefndarfundur verði haldinn í fyrramálið.