Kristinn Pétursson :
Hæstv. forseti. Það var fjallað hér um þetta mál í dag og ég verð að segja það að ég sakna þess, eins og þetta mál er alvarlegt fyrir íslensku þjóðina, að ekki skuli vera fleiri mættir hingað í þinghúsið.
Ég ætlaði aðeins að koma inn á málefni fiskvinnslunnar í sambandi við þessa umræðu. Ég tel að þessi ríkisstjórn hafi algjörlega brugðist í því að móta fiskvinnslustefnu, eins og stendur í stjórnarsáttmálanum. Og ég ætla að segja það að ég tel að það verði þjóðinni dýrkeypt innan fárra ára ef hagsmunir fiskvinnslunnar eru algjörlega sniðgengnir í löggjöf um stjórnun fiskveiða, ekki síst á meðan ekki hefur fundist lausn á tollamúrum Efnahagsbandalagsins vegna þess að sjávarútvegsstefna, þ.e. kvótastefna, önnur stefna í sjávarútvegsmálum, verður að taka tillit til hagsmuna þjóðarheildarinnar. Ef það verður ekki gert endar það með því að Ísland verður einhvers konar hráefnisnýlenda Efnahagsbandalagsins þar sem íslensk fiskvinnsla mun ekki standast þessa samkeppni og þar af leiðandi mun fiskvinnsla og öll starfsemi henni tengd smám saman leggjast af með stórkostlegum samdrætti í verðmætasköpun og atvinnu. Það er auðvitað ljóst að slíkt mundi leiða til hruns í lífskjörum og landflótta fjölda fólks. Ég held að megi segja að helstu einkenni þessarar þróunar séu þegar að koma í ljós. Þegar fjallað hefur verið um hagsmuni sjávarútvegs hefur kannski oft gleymst að geta þess að hagsmunir sjávarútvegsins eru ekki bara hagsmunir sjávarútvegsins eins heldur þess iðnaðar og þeirra þjónustugreina sem þjóna sjávarútvegi og þá sérstaklega hvernig tollar hafa skert samkeppnisstöðu íslensks fiskiðnaðar.
Ég ætla aðeins að koma hér, hæstv. forseti, inn á þá aukningu sem hefur orðið á útflutningi á ferskum fiski. Ég tel að það sé eitt af þeim atriðum sem ekki hefur verið fjallað nægilega um því að 1984 voru flutt út um 7% af óunnum fiski úr landi, en á fyrri helmingi þessa árs, fimm árum seinna, var þetta hlutfall komið upp í 21%. Prósentuleg aukning er því um 200% á tímabilinu eða að meðaltali um 25% á ári sl. fimm ár. Einnig hefur orðið gífurlega mikil aukning á sjófrystingu að því er manni virðist án stefnumörkunar þannig að ef þessi þróun heldur áfram, eins og verið hefur, verður ekki unninn einn einasti fisktittur hér í landinu 1996, miðað við sömu áframhaldandi þróun og frá 1984. Það er því ástæða til þess að spyrja hæstv. sjútvrh.: Hvar eru mörkin á því? Hvenær á að segja: Hingað og ekki lengra með aukna sjófrystingu með tilheyrandi verri nýtingu en vinnslu í landi þó svo að verðið sé eitthvað pínulítið hærra á þessum sjófrysta fiski? Hvað með þetta, eins og ég var að rekja hér í dag: Er það hagræðing að maður með 350 þús. kr. mánaðarlaun verki hringorma og vinni fisk með þessum hætti þegar hægt er að gera þetta í landi fyrir miklu lægra kaup? Sjómennska er akkorðsvinna. Þar af leiðandi er þetta ákaflega dýr aðferð, svo að ekki sé nú talað um allt það sem menn verða að fleygja því að þessi skip, sem sjófrysting fer
fram í í dag, voru ekki upphaflega smíðuð fyrir slíka frystingu. Það má segja að þetta sé einn angi af þessu kvótakerfi, að menn neyðist til þess að fara út í þetta til þess að bjarga fyrirtækinu fyrir horn og það sé skárra að gera þetta í þessu kerfi og ná kannski pínulítið meiri verðmætum þó svo að þetta sé raunverulega á kostnað þjóðarheildarinnar.
Þegar maður nefnir svona tölur, eins og þær sem sýna að frysting og vinnsla sjávarafurða í landi dragist saman, þá er jafnvel til fólk sem segir: Er þetta ekki allt í lagi? Fiskvinnslan er bara ekki samkeppnisfær. Það má kannski segja að þessi staðhæfing lýsi vel þeirri einfeldni og þeirri fáfræði sem oft kemur fram í umræðum um sjávarútvegsmál þar sem ekki er tekið tillit til skertrar samkeppnisstöðu fiskvinnslunnar vegna tollastefnu og ríkisstyrkja Evrópubandalagsins sem má eiginlega líkja við nokkurs konar nýlendustefnu.
Í sambandi við sölu á þessum trillukvóta, þá er ég hér með Fiskifréttir frá 30. nóv. þar sem kemur fram að um 200 trillukvótar hafi verið seldir á þessu ári fyrir um hálfan milljarð kr. Hér er kannski um 600 atvinnutækifæri að ræða, hæstv. forseti. Það eru jafnmörg atvinnutækifæri og eiga að vera í hinu nýja álveri eftir að það er tekið til starfa. Bara sá trillukvóti, sem hefur gengið kaupum og sölum það sem af er árinu, áður en lögin taka gildi, er sala á jafnmörgum atvinnutækifærum út og suður og verið er að byggja upp fyrir þá sem eiga að vinna í fyrirhuguðu álveri. Og hvað erum við að gera, hæstv. forseti, með því að byggja hér álver? Við flytjum inn hráefni fyrir álverið, við ætlum að selja orkuna, við ætlum að hafa vinnuna, við ætlum að fá út úr þessu virðisauka, við ætlum að fá út úr þessu margfeldisáhrif fyrir íslenskt þjóðfélag, við ætlum að auka þjóðartekjur. Á sama tíma erum við að flytja út 100 þús. tonn af óunnum hráefnum. En hvað getur það skapað mörg atvinnutækifæri, þó að við byrjum nú ekki að ræða nema helminginn af því, því að sumt borgar sig best að selja ferskt þó svo það eigi ekki að ganga jafnstjórnlítið og verið hefur.
Ég vil aðeins víkja að starfsemi Aflamiðlunar. Aflamiðlun starfar ekki eftir neinum lögum. Aflamiðlun er bara afkvæmi valdabaráttu sjútvrn. og utanrrn. um hver eigi að fara með þessi völd, að ákveða hverjir fái að flytja út fisk og hverjir ekki. Þetta er eins og á gömlu skömmtunarárunum þegar skömmtunin hjá Framsfl. var upp á sitt besta, hverjir máttu flytja inn bíla og hverjir máttu gera þetta og hverjir máttu flytja inn hitt.
Ef við snúum dæminu við er hægt að segja að í dag gætu sumir fengið dollarann keyptan á 20 kr. þó að hann kosti 54 kr. í dag. Þetta kerfi aflamiðlunar er fyllilega sambærilegt, eins og sumir gætu fengið dollara keyptan á 20 kr. ef við hefðum einhverja gjaldeyrismiðlun sem ákvæði hvaða heildsalar ættu nú að fá að flytja út og þá sérstaklega að fá að kaupa dollarann á 20 kr., og þá sérstaklega þeir sem hafa flutt mikið inn, væntanlega. Dytti mönnum virkilega til hugar í dag að búa til slíkt kerfi þar sem sumir
fengju dollarann á 20 kr. en aðrir yrðu að gjöra svo vel að borga fyrir hann 56 eða 54? Það sjá allir að svona lagað gengur ekki upp. En hvað á þá að koma í staðinn? gæti maður spurt. Sumir hafa viðrað hugmynd um að setja 15% á hvert skip. Þá er búið að útiloka íslenska fiskvinnslu og íslenskt fiskverkafólk frá því að vinna þessi 15% og þar með er sú leið ekki heldur fær. Mín skoðun er því sú að sú ein leið sé fær að selja allan ísvarinn fisk í gegnum íslenska markaðinn þar sem ekki er selt beint frá fiskiskipi til vinnslustöðvar sem er í eigu sama aðila. Það væri eðlilegra að erlendir aðilar kæmu þá til Íslands og keyptu þennan fisk hér. Þar með væri þetta allt saman komið undir íslenska lögsögu.
Í nýjustu vigtunarreglugerð hæstv. sjútvrh. er gert ráð fyrir að þeir einir verði undanþegnir þessum vigtunarákvæðum sem senda fiskinn úr landi. Af hverju verða þeir undanþegnir þessu? Ég óska eftir að hæstv. sjútvrh. svari því. Trilla verður að vigta hvert einasta kíló á löggilta vog og allir Íslendingar sem landa. Ef þrír gámar verða kannski sendir einhvers staðar norðan úr landi og síðan fengist ekki leyfi fyrir nema tveimur ætti lögum samkvæmt raunverulega að senda þennan eina gám til baka aftur til þess að vigta fiskinn vegna þess að ef fiskur er fluttur milli staða innan lands á að vigta hann allan í þeirri höfn sem honum er landað í. Svona er margt furðulegt í þessu. Og það stenst auðvitað ekki þá jafnréttisreglu, sem ég var að tala um í dag í sambandi við stjórnarskrána, að sumir eigi að vigta aflann og aðrir ekki, aðrir geti sent hann úr landi og látið erlenda aðila um það að vigta hann. Hvernig fyndist mönnum það ef það ætti að fara að senda vörur til landsins, og telja síðan hér út úr gámum og pappírarnir sýndu bara eitthvað út í loftið? Hvað mundu tollyfirvöld segja þá? Svo yrði bara talið úr þessu hér heima og einhver einkafyrirtæki látin gera það. Svona gengur náttúrlega engan veginn upp.
Mig langar aðeins til þess að víkja að því hvers vegna hæstv. sjútvrh. skyldi hafa sett steinbít í kvóta. Er það ofveiði á steinbítnum? (Gripið fram í.) Eða kola. Það var hætt við að setja steinbítinn eftir heilmiklar vangaveltur, en kolinn var settur í kvóta. Er ofveiði á skarkola? Ekki hef ég séð nein rök um það að það sé ofveiði á skarkola. Ég óska þess að hæstv. sjútvrh. geri grein fyrir því.
Það eru níu línur í skýrslu Hafrannsóknastofnunar um skarkola. Það er ekkert getið um það í nýjustu skýrslunni að um neina ofveiði sé að ræða. Þetta eru nákvæmlega sömu níu línurnar og árið þar áður og í fyrra. Það er engin breyting á tillögum Hafrannsóknastofnunar í því plaggi. Er kannski skýringin sú að það þurfi að setja kolann í kvóta vegna þess að það sé farið að senda svo mikinn þorsk úr landi sem er látinn heita koli? Er það skýringin? Eða er einhver önnur vitræn skýring til?
Eins og ég sagði hér í dag er óheimilt að setja takmörk á atvinnufrelsi manna nema almannaheill sé þar á bak við. Og stendur einhver almannaheill á bak við það að nú skuli kolinn settur í kvóta? Hvers vegna?
Hvaða rök eru það? Ég óska eindregið eftir því að hæstv. sjútvrh. útskýri það hér fyrir okkur hvers vegna kolinn hafi verið settur í kvóta og hvers vegna áform voru uppi um að setja steinbítinn líka í kvóta. Það er alveg fráleitt í mínum huga að ætla sér að stjórna fiskveiðum eins og að reka stórt dagheimili, eins og ég sagði hér í dag, og ætla sér að vera með nefið alltaf niðri í hvers manns koppi, fylgjast með hverjum, allir á gjörgæslu. Það styttist í það að skipin verði sett á einhvers konar ,,online`` beint í ráðuneytið þar sem hægt er að fylgjast daglega með hvað þau fiska og hvaða tegund þau eru að fiska o.s.frv., allt þjóðfélagið á gjörgæslu.
Mér finnst þetta hálfgerð hryllingsmynd og ég trúi því ekki og er þess fullviss sjálfur að það er
hægt að lagfæra núverandi kvótakerfi til manneskjulegra viðhorfs og gera það einfaldara þannig að ráðuneytið þurfi ekki að vera með nefið niðri í hvers manns koppi. Og hvað smábáta varðar þá stafar fiskstofnunum ekki nein hætta af veiði þeirra og því óhætt að setja þá í það banndagakerfi sem þeir voru hér áður í. Fiskstofnunum stafar engin hætta af því. Það er alveg stórfurðulegt hvernig smábátar hafa verið lagðir í einelti í þessu kerfi. Og eiga nú bátar norður við heimsskautsbaug nógu erfitt með að glíma við Ægi konung og veðráttuna þar um slóðir.