Veiðiheimildir smábáta
Mánudaginn 17. desember 1990


     Halldór Blöndal :
    Hæstv. forseti. Það kemur auðvitað ekki á óvart þó margir þingmenn taki til máls í þessari umræðu og hún veki mikla athygli, eins mikil óánægja og er í þjóðfélaginu út af stjórn fiskveiða af ýmsum ástæðum. Þessi óánægja er ekki bundin við einn stað heldur hefur hún dreifst út um þjóðfélagið. Ástæðan er sumpart sú að þær viðmiðanir sem teknar hafa verið í sambandi við aflaúthlutun hafa í gegnum árin sumar verið mjög hæpnar. Ég minni m.a. á þær viðmiðanir sem lagðar voru til grundvallar í sambandi við rækjuúthlutun á sínum tíma þegar þeir útgerðarmenn sem höfðu verið fyrstir á vettvang, ef svo má segja, sem fyrstir höfðu farið á miðin út frá Norðurlandi, voru skornir niður við trog vegna þess að þeir höfðu skipt um bát á viðkvæmu augnabliki þó svo að ekki hafi verið tekið tillit til rækjuveiðanna áður þegar þorskkvótinn var tekinn upp í fyrsta skipti.
    Í öðru lagi vekur það náttúrlega miklar spurningar hvernig staðið hefur verið að viðmiðunum í sambandi við úthlutun á kolakvótanum. Ég hygg að þeim kvóta hafi enn ekki verið úthlutað en ég óttast mjög að þau viðmiðunarár sem tekin verða orki tvímælis. Má spyrja sjálfan sig að því hvernig á því standi að á sínum tíma var horfið frá því að hafa kolann innan kvóta.
    Ég vil í þriðja lagi vekja athygli á því að spurningar hafa vaknað í sambandi við innfjarðaveiðar á ýmsum stöðum, hvort þar hafi verið rétt staðið að verki. Talað hefur verið um einstaka báta í því sambandi sem hafa verið kvótalausir. Auðvitað hlýtur það alltaf að vera matsatriði og ákvörðunaratriði hvort rétt sé að úthluta til nýrra aðila ef einhver fellur út í veiðinni eða hvort rétt sé að reyna að láta ögn meira verða til skiptanna.
    Nú er óhjákvæmilegt að fara nokkrum orðum um þá atburði sem nú eru að gerast. Ég tek fullkomlega undir það sem hv. 2. þm. Austurl. sagði í dag, að það er ekki vansalaust hvernig Alþingi stóð að afgreiðslunni á frv. um stjórn fiskveiða. Það hafði verið unnið mjög mikið verk við undirbúning þeirra laga og reynt hafði verið að hafa þá vinnu á breiðum grundvelli allt fram á síðustu stund þegar í ljós kom að þeir menn sem nú fara með völd í landinu gátu ekki hugsað sér að halda samvinnunni til loka, heldur kusu að ýta stjórnarandstöðunni út í ystu myrkur og hafa hana hvergi með í ráðum á lokasprettinum. Þetta er auðvitað lýsandi fyrir þá ríkisstjórn sem nú situr, þann mikla valdahroka sem einkennir vissa menn í þeirri ríkisstjórn og að sumu leyti það mikla kæruleysi sem hvílir yfir öðrum mönnum í ríkisstjórninni.
    Ég varð auðvitað mjög undrandi þegar mér var sagt það í sjútvn. Ed. að ekki þýddi fyrir okkur hv. 14. þm. Reykv. Guðmund H. Garðarsson að fitja upp á brtt. af einu eða neinu tagi, þar sem við höfðum átt í mjög náinni samvinnu við ýmsa þeirra sem höfðu unnið að undirbúningi málsins. Síðan munum við eftir því að þessu máli var dengt með miklum hraða í gegnum Nd. þannig að ómögulegt var að hafa nokkrar umræður að marki um það, ég tala ekki um að athuga málið að nýju út frá þeim nýju sjónarmiðum sem komið höfðu fram við afgreiðslu þess í Ed. Við sjálfstæðismenn álitum að þetta mál væri svo viðkvæmt og svo mörg vafaatriði í kringum það að óhjákvæmilegt væri að skoða það miklu betur, íhuga málin betur. Við buðum það fram að aukaþing yrði kallað saman síðsumars til þess að ræða sérstaklega stjórn fiskveiða og reyna að ná víðtækara samkomulagi en unnt var á þessum vordögum. Við þessari beiðni okkar var ekki orðið. Má kannski segja að það sé mikið slys vegna þess að eftir blaðafregnum að dæma virðist svo nú sem efnislegar forsendur hafi verið fyrir hendi, að hv. 5. þm. Reykv., sem var oddamaður í Ed., hefði lagst á sveifina með okkur hinum sem höfðum mest beitt okkur í þessu máli. Þá hefði náðst meiri hluti fyrir því í Ed. að málið yrði tekið upp og athugað sérstaklega síðsumars.
    Þessi leið var ekki farin. Síðan vinnur hæstv. ráðherra að því að undirbúa úthlutun á fiskveiðikvóta fyrir smábáta. Þar eru auðvitað líka mörg álitamál. Þau sérstöku viðmiðunarár sem tekin voru orka mjög tvímælis gagnvart mörgum þeim einstaklingum sem hafa gert það að atvinnu sinni að róa á smábátum frá sínum heimahöfnum. Þessi sérstöku ár hafa verið mjög misgóð á einstökum stöðum. Viðmiðun sums staðar er allsendis ófullnægjandi ef borið er saman við ævistarf þeirra hinna sömu manna og ef borið er saman við ýmsa þá sem fá verulega úthlutun en hafa þó lítið komið nálægt útgerð smábáta. Mér hefur verið sagt af manni sem gerir út bát frá einum stað eystra að hann fái verulega minna úthlutað vegna þess að hann hafi átt bátinn í tvö ár en hann hefði fengið ef báturinn hefði verið nýr og hann hefði fengið hann fyrst á þessu ári.
    Slík dæmi vekja auðvitað ótal spurningar. Hitt er öldungis rétt sem hæstv. sjútvrh. hefur sagt, að það er ávallt vandasamt að úthluta því sem ekki er nóg af. Það geta ekki allir komið ánægðir frá slíkri úthlutun. En þó svo að þær staðreyndir liggi fyrir er ekki þar með sagt að endilega hafi verið farið rétt að öllu í sambandi við aðdraganda, undirbúning eða ákvörðun fiskveiðikvóta á einstök skip. Sérstaklega hlýt ég að gera það að umræðuefni að ég hef haldið því fram, alveg frá því að kvótinn var lagður á í fyrsta skiptið 1984, að nauðsynlegt hefði verið að hafa gát á því að smábátum fjölgaði ekki um of. Ég sagði á sínum tíma að það mundi sennilega vera skynsamlegt að gefa handfæraveiðar frjálsar yfir sumarið til þess að reyna að sporna gegn fjölgun smábáta. Á það var ekki fallist eins og menn vita.
    Á sl. hausti vorum við sem áttum sæti í milliþinganefnd um stjórn fiskveiða allir sammála um að ekki kæmi annað til álita en að stöðva fjölgun smábáta frá síðustu áramótum. Nú hefur komið í ljós að frv. um slíkt hafi stöðvast hjá stjórnarflokkunum og þýðir lítið fyrir þá sem þar eru að varpa þeim bolta yfir á aðra eða segja að aðrir beri ábyrgð á því máli þar sem það liggur alveg ljóst fyrir að meiri hluti var í þinginu fyrir því að stöðva fjölgun smábáta um síðustu áramót, og þó fyrr hefði verið.
    Nú er það svo, hæstv. forseti, að sú vinna sem fór fram á síðasta þingi í sjávarútvegsnefndum til undirbúnings frv. um stjórn fiskveiða var mjög mikil. Það var á þeim tíma ánægjulegt hversu hjálpsamir menn voru, sérstaklega Kristján Skarphéðinsson, starfsmaður sjútvrn., sem lét okkur nefndarmönnum í té margvíslegar upplýsingar sem sumar voru trúnaðarmál, eins og tilraunaúthlutun sem þá var gerð með hliðsjón af því að sóknarkvóti yrði lagður niður en fundin tiltekin regla til þess að skipta afla sóknarmarksskipanna á einstök önnur skip. Þetta var auðvitað mikið trúnaðarmál og þarf ekki að fara mörgum orðum um að þessi tilraunaúthlutun komst ekki í fjölmiðla. Á hinn bóginn hlaut hún að opna augu manna fyrir því hvaða hættur voru í veginum í sambandi við afkomu einstakra útgerða ef þær yrðu í einu vetfangi sviptar þeim möguleikum sem sóknarmarksreglurnar gáfu þeim skipum.
    Ég vil í þessu sambandi rifja upp að á sínum tíma, þegar ríkissjóður var að selja Spánartogara sem voru í eigu ríkissjóðs, var sagt við þá aðila sem þá keyptu skip að það væri meðal kosta slíkra skipa að þeim væri heimilt að fara á rækjuveiðar. Þetta varð til þess að tveir útgerðarmenn létu setja rækjuvinnsluvélar í sín fiskiskip. Sá búnaður var hins vegar aldrei notaður vegna þess að reglunum var breytt fyrir næstu áramót. Þessi hringlandi í sambandi við stjórn fiskveiða á undanförnum árum hefur auðvitað bitnað mjög þunglega á mörgum útgerðum þó svo segja megi að ýmsir aðrir hafi kannski með sama hætti getað notfært sér þetta. Ég veit vel að hæstv. ráðherra var ásamt mér í hópi þeirra manna sem vildu hafa fyrri löggjöf til lengri tíma og vorum við sammála um það atriði. Það breytir hins vegar ekki því að innflutningur á fiskiskipum hefur haldið áfram, sem auðvitað orkaði mjög tvímælis, að gefa heimildir til þess að láta smíða ný fiskiskip erlendis á sama tíma og við höfðum ekki komið lögunum um stjórn fiskveiða í framtíðarhorf.
    Við lesum nú um það að ýmsir þeir sem hafa verið að festa kaup á nýjum skipum erlendis hafa ekki getað haldið þeim. Nú síðustu daga er verið að tala um að Aldey verði seld til Hornafjarðar og útgerðarmönnum hefur ekki tekist að ná skipum sínum til landsins. Sum liggja bundin við bryggju.
    Ég hlýt að taka undir með hv. 1. þm. Vestf. Matthíasi Bjarnasyni þegar hann líkir því við eignaupptöku þegar sumir útgerðarmenn eru settir í þau spor að þeir halda einungis einum fiski af hverjum þremur sem þeir hafa áður veitt með þeim möguleikum sem sóknarmarkið hefur gefið þeim. Ég hlýt líka að vekja athygli á því í sambandi við þau skip sem hafa verið á línu að þær reglur hafa verið útfærðar með þeim hætti að einstakir útgerðarmenn hafa orðið fyrir þungum búsifjum vegna þess að þeir skildu ekki til fulls inntak þeirrar reglu að línuveiðarnar fólu það í sér að einungis helmingur aflans skyldi talinn þegar aflamark var metið.
    Þær umræður sem hér fara fram hófust vegna

þeirra sérstöku aðstæðna sem eru í Grímsey. Ég hlýt, hæstv. forseti, að vekja athygli á því að forsetar Alþingis hafa sérstaklega fundið að því að ég skuli hafa gert málefni Grímseyinga að umræðuefni í þessum ræðustól eftir að hafa gert forseta þingsins aðvart hálfum öðrum tíma áður um að ég mundi gera það og fengið gott samþykki forseta til að taka það mál upp. Ég er þess vegna mjög þakklátur hv. 4. þm. Norðurl. e. fyrir að hann skyldi hafa tekið málefni Grímseyinga upp í umræðum utan dagskrár. Mér var leiðbeint á sínum tíma að slíkar umræður ættu að vera um þingsköp en vegna þess að ég þurfti í leiðinni að vekja athygli forseta á því að heimildum hafði verið haldið fyrir nefndarmönnum sjávarútvegsnefnda Alþingis, sem ég skal ekki gera að umræðuefni nú, en aðeins ítreka að það er síst til þess að auka traust á framkvæmd
þeirrar úthlutunar sem nú fer fram til smábáta að verið er að reyna að halda plöggum leyndum fyrir nefndarmönnum í sjútvn., plöggum sem við vitum að eru til utan við dyr ráðuneytisins og þess vegna ekki rétt að það séu sérstök innanhússplögg sem aðeins séu þar innan dyra.
    Það ástand sem nú er komið upp í Grímsey getur ekki komið hæstv. ríkisstjórn né stuðningsmönnum hennar á óvart. Það var augljóst þegar við, nefndarmenn sjútvn., fengum í hendur þær tilraunakeyrslur, sem voru gerðar á síðasta þingi, yfir sóknarmarksskip að mörg þeirra mundu fá svo lítið í sinn hlut eftir að eingöngu var miðað við aflamark að útilokað yrði fyrir útgerðarmenn að reyna að halda þessum skipum áfram úti. Við megum ekki gleyma því að þó svo að menn mæli með því að hægt sé að selja veiðiheimildir varanlega milli staða felst auðvitað í því að hinn sterki hefur miklu meiri möguleika til þess að ná aflaheimildunum til sín en hinn sem veikari er og hefur minna milli handanna. Ég man að ég tók einmitt þetta mál sérstaklega upp í ræðu minni í Ed. á sl. vori þegar ég spurði hvor hefði meiri möguleika á því að kaupa til sín aflakvóta, bátur frá Bakkafirði eða Útgerðarfélag Akureyringa, og svaraði sjálfum mér og sagði að auðvitað mundi báturinn frá Bakkafirði hafa meiri möguleika en Útgerðarfélagið til þess að kaupa kvótann.
    Auðvitað liggur það í augum uppi að ástandið í Grímsey kemur engum á óvart. Sumpart er þetta ástand komið til af því að sóknarmarksskip hafa misst verulega af sínum afla, sem veldur því að þeir sem eru verst undirbúnir sjá sér ekki fært að halda skipunum, þar sem þeir gera sér grein fyrir að með svo takmörkuðum aflaheimildum munu skuldirnar vaxa þeim yfir höfuð. Raunar hafa tvö skip þegar verið seld frá eynni af þessum sökum. Í öðru lagi eru erfiðleikar þeirra Grímseyinga fólgnir í því að frá öðrum skipum, sem kyrr eru, dregst afli af sömu sökum og í þriðja lagi vegna þess að þær reglur sem notaðar voru við úthlutun á aflamarki til smábáta eins og tilraunaúthlutunin lítur út koma mjög þungt niður á a.m.k. einum manni, sem ég vil ekki nafngreina hér, og eflaust fleirum þó svo að ég hafi ekki haft samband við þá í eynni til þess að fara nákvæmlega ofan í þá hluti en sé að margir þeirra missa verulega í afla.
    Þegar lögin um stjórn fiskveiða voru afgreidd var gert mikið mál úr því að til yrði sérstakur hagræðingarsjóður, sem var stofnaður út frá Úreldingarsjóði fiskiskipa til að hlaupa undir bagga á þeim stöðum, eins og sagt var almennt, þar sem atvinnubrestur yrði. Var gert að algerri forsendu fyrir því að sjóðurinn gæti komið til hjálpar að fiskiskip væri selt á brott. Nú heyrðist mér í sjónvarpsviðtali sem haft var við hæstv. sjútvrh. að hann telji þær bátasölur sem nú hafa orðið frá Grímsey valda því að forsendur séu fyrir hendi að hlaupið sé undir bagga með Grímseyingum á næsta ári. Ég hef að vísu ekki séð reglugerð með þessum sjóði sem ég er að tala um, hún getur heldur ekki breytt bókstaf laganna, en eins og hæstv. sjútvrh. talaði í sjónvarpinu var ómögulegt að skilja hann öðruvísi en svo að hann teldi að nú væru forsendur fyrir hendi til að koma Grímseyingum til hjálpar á næsta ári. Um þetta vil ég spyrja. Mér finnst lögin vera svo þröng að það hljóti að vera á mörkunum, en glaður yrði ég ef sú yrði niðurstaðan, en hlýt um leið að minna á að hæstv. sjútvrh. sagði réttilega hér í ræðustól á dögunum að Alþingi hefði hafnað því að tekið væri tillit til smástaða eins og Bakkafjarðar eða Grímseyjar með þessum sjóði ef þeim héldist á þeim skipakosti sem væri á þessum stöðum. Það var með öðrum orðum ekki hugsun né hugmynd meiri hluta Alþingis, ríkisstjórnarinnar, með stofnun þessa sjóðs að koma byggðarlögum eins og Bakkafirði eða Grímsey til hjálpar. Það lá alveg ljóst fyrir og hefur verið staðfest af hæstv. ráðherra.
    Ég hef verið spurður af mönnum úti í Grímsey hvort ég geri ráð fyrir því að umræður á Alþingi nú eða tilraunir einstakra manna til að rétta þeirra hlut muni bera árangur. Ég hef sagt þeim hreinskilnislega að ég sjái ekki að óbreyttum lögum hvaða möguleikar eigi að vera á því. Ég hlýt því, hæstv. forseti, að segja aðeins það í lokin að þessi framkvæmd kvótalaganna, laganna um stjórn fiskveiða, að því er lýtur að smábátum, hefur farið þannig fram að ýmsir hafa tekið skjótar ákvarðanir sem síst skyldi. Það hefur verið mikil óvissa í röðum útgerðarmanna, bæði smábáta og annarra, vegna þess að þeir skilja ekki hvernig næsta ár kemur út en hafa þó fengið um það fulla vissu bæði hjá bönkum og opinberum sjóðum að eftir næstu áramót muni veðhæfni einstakra skipa rýrna svo að staða þeirra gagnvart eðlilegri lánsfyrirgreiðslu verði allt önnur en áður hefur verið.
    Ég get auðvitað sagt að hver sé sjálfum sér næstur. Auðvitað er ég kunnugri í Norðurl. e. en í öðrum kjördæmum. Ég vil gjarnan rifja það upp í þessu samhengi að fyrir einu ári gengu útgerðarmenn frá Húsavík á fund hæstv. sjútvrh. og vöktu athygli hans á því að þau lán, sem hvíldu á fiskiskipum á Húsavík og raunar víðar á Norðurlandi, væru til svo skamms tíma að borin von væri að þeir gætu haldið skipunum að óbreyttu. Þess vegna var farið fram á það að sjútvrh. beitti sér fyrir því að þessum skammtímalánum yrði breytt í lán til langs tíma þannig að greiðslubyrði á

skipunum yrði viðunandi.
    Það er að sönnu rétt að ýmsir þeir útgerðarmenn sem hafa verið með lán hjá opinberum sjóðum, mér er sagt hjá Fiskveiðasjóði og Byggðasjóði, hafa fengið skuldbreytingu. Á hinn bóginn hefur ekki fengist stuðningur ráðuneytisins við það að almenn skuldbreyting verði tekin upp á bátum á einstökum stöðum til þess að reyna að treysta útgerð þar. Ef við lítum sérstaklega til Húsavíkur er svo komið núna að þaðan hafa verið seldir þrír bátar. Sumir vilja halda því fram að fleiri séu á leiðinni burtu. Við getum talað um það í sambandi við Grímsey að sá þorskkvóti sem þar fellur til á næsta ári verður kannski 500 -- 600 tonnum minni en á þessu ári eða í fyrra. Ef við lítum aftur til Húsavíkur liggur þar fyrir að svo harkalega hefur verið gengið að útgerðinni að mikill uggur er í Húsvíkingum. Þeir svartsýnustu halda því jafnvel fram að enn fleiri skip séu á förum frá Húsavík. Ég fullyrði, hæstv. forseti, að ástæðan sé sú í fleiri tilvikum en einu að ekki hefur fengist eðlileg lánafyrirgreiðsla til þeirra útgerðarmanna sem þar hafa verið að vinna. Auðvitað er það rétt að aflabrögð hafa verið rýr fyrir Norðurlandi. Þar hefur verið kaldur sjór. Vonandi er sjórinn þar að hlýna. Vonandi er vor í sjó fyrir norðan. En það breytir því ekki að atvinnugrundvöllurinn hefur veikst, m.a. vegna þess að opinberir aðilar hafa ekki viljað koma til móts við þessa smáu útgerðarmenn með sama hætti og hlaupið hefur verið til þegar stærri aðilar hafa átt í hlut. Sumir stjórnmálamenn eru meira að segja þeirrar skoðunar að ef hægt er að tala um sameiningu á fyrirtækjum sé sjálfsagt að margir sjóðir leggi mikið af mörkum. Ófá eru þau fyrirtæki hringinn í kringum landið sem hafa fengið beina styrki úr ríkissjóði, fjárgjafir úr ríkissjóði, eins og m.a. má sjá í því frv. til fjárlaga sem er meiningin að afgreiða fyrir jól. Ég hygg að í því tilviki sé verið að tala um hátt á annað hundrað milljónir króna úr ríkissjóði til eins og sama aðilans á sama tíma og smáskip, sem kannski eru ekki svo stór hvert og eitt, geta ekki fengið sínum lánum breytt í önnur ívið lengri þannig að eðlilegur rekstrargrundvöllur sé tryggður með hliðsjón af þeim aflamöguleikum sem viðkomandi skip hafa.
    Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa þessi orð lengri. Auðvitað vitum við að ekki er allt sem sýnist í sjávarútvegi Íslendinga um þessar mundir. Fiskvinnslan er rekin með tapi. Ég veit ekki hvort nýja skattalagafrv. ríkisstjórnarinnar var lagt fram í dag. Ég hef ekki veitt því athygli hvort því hefur verið dreift á borðin. En það má kannski vekja athygli hæstv. sjútvrh. á því að þetta nýja skattalagafrv. kemur illa við einmitt eigendur smábáta, þá sem við erum hér sérstaklega að tala um, að skattbyrði þeirra mun þyngjast með þessu nýja skattalagafrv. Ekki verður það til að hressa upp á sakirnar.
    Við getum líka rætt um það að svo er komið að hafnarskilyrði víðs vegar um landið eru algerlega ónóg. Í fjárlagafrv. er talað um 350 millj. kr. til hafna, allra annarra en tveggja. Á sama tíma er verið að leggja í einstaka hafnir sem eru að reyna að ná

í fisk af Íslandsmiðum, draga fiskinn frá íslensku fiskvinnslunni erlendis, milljarð a.m.k. í hverja höfn, bæta þar aðstöðu og gera öll skilyrðin þar sem aðgengilegust. Hér eru litlar 350 millj. og hugmyndin var sú að taka það frá sjómönnunum sjálfum. Við vitum að iðgjöld flotans af vátryggingum eru mjög há, ekki síst vegna þess hvað skipin verða fyrir miklum og margvíslegum tjónum í höfnum.
    Ég hygg að enginn sjútvrh. íslenskur hafi áður verið með svo auma og bága stöðu þegar fjárlög eru lögð fram að ríkissjóður geti ekki séð af einni einustu krónu í hafnirnar. Nú á að bæta úr þessu skilst mér með því að auka hallann á ríkissjóði og vísa því til framtíðarinnar hvernig verði staðið undir hafnafénu. Slík er nú rausnin yfir því.
    Ekki hefur örlað á neinni fiskvinnslustefnu. Við getum ekki kvartað undan því að ríkisstjórnin hafi tekið tíma þingsins til þess að gera grein fyrir þvílíku. Fastgengisstefnan sem við búum núna við og ríkisstjórnin hyggst halda áfram mun auðvitað enn þrengja að fiskvinnslufyrirtækjum úti á landsbyggðinni. Þegar verið var að afgreiða frv. um Stefánssjóðinn, sem heitir Atvinnutryggingarsjóður útflutningsgreina, var verið að tala um það að ekki yrði tekið við umsóknum frá fleiri fyrirtækjum en þeim sem komnar væru inn, ef ég man rétt, fyrir síðustu áramót. Svipaður söngur var í sambandi við Hlutafjársjóðinn. En skyldi það hafa þýtt það að ríkisstjórnin vilji nú hætta framlögum úr ríkissjóði til einstakra fyrirtækja? Nei, það þýðir það ekki. Þær aðgerðir sem farið var í með hjálp þessara sjóða hafa reynst ónógar á mörgum stöðum og vandamál ekki smærri í sniðum en þau voru fyrir einu eða tveimur árum blasa nú við þessum fyrirtækjum.
    Það er líka kominn mikill órói í fólkið í smáplássunum. Það áttar sig ekki alveg á því hver staða þess er. Ég get að lokum sagt frá því að ég hafði spurnir af því þegar ég var í Austfjarðakjördæmi núna í vor að allur fiskur sem kom á land nema af einum bát var unninn annars staðar. Var mér sagt að hugmyndin væri að flytja líka fiskinn burtu af þessum eina bát. Það er því margt sem þrengir að fólkinu í sjávarplássunum nú um þessar mundir.