Veiðiheimildir smábáta
Mánudaginn 17. desember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti telur nauðsynlegt að halda þessari umræðu áfram nú. Sá sem til hennar stofnaði er að fara út af þingi þannig að forseti sér ekki ástæðu til þess að þessi umræða geti ekki farið fram. Það hefur komið fram að hæstv. sjútvrh. hefur svarað beiðni forseta á þann veg að hér sé um vinnugögn að ræða sem ráðuneytið vilji ekki láta af hendi. Við það ræður forseti einfaldlega ekki. Það er í valdi hæstv. ráðherra að ákveða hverjum hann sýnir vinnugögn ráðuneytisins. Ég held einnig að vel sé hægt að ræða þessi mál þó þessi umræddu gögn liggi ekki fyrir þar sem öllum er kunnugt um þann vanda sem hér steðjar að. Forseti hyggst leyfa þeim hv. þm. sem hér hafa kvatt sér hljóðs að taka til máls í þessari umræðu.