Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson) :
Virðulegur forseti. Ég þarf ekki að ítreka það að þau gögn sem hér hefur verið talað um eru vinnugögn sjútvrn. Það kemur skýrt fram í því bréfi sem skrifað er til forseta Ed. sl. föstudag. Ég ætla ekki að lesa þetta bréf upp. Hæstv. forseti Sþ. hefur væntanlega séð þetta bréf en þar stendur:
,,Ráðuneytið er hins vegar, eins og áður hefur komið fram, tilbúið til að veita þingmönnum upplýsingar um einstök atriði í úthlutuninni sem sérstaklega er beðið skýringa á, en slíkar upplýsingar verða veittar sem trúnaðarmál ef þær varða úthlutun til einstakra útgerða á meðan undirbúningsvinna stendur yfir. Hafa slíkar upplýsingar þegar verið veittar þingmönnum sem eftir slíkum upplýsingum hafa leitað.``
Þetta, hæstv. forseti, kemur skýrt fram í þessu bréfi. Sá vinnulisti sem hér hefur verið beðið um að væri afhentur verður afhentur síðar, eins og kemur jafnframt fram í lok bréfsins. Þegar athugasemdir hafa borist og afstaða hefur verið tekin til vafaatriða og ágreiningsmála fer úthlutun aflahlutdeildar endanlega fram. Sú úthlutun verður opinber og upplýsingar um hana öllum aðgengilegar eins og gilt hefur um úthlutun aflamarks til stærri skipa á undanförnum árum.
Ég vænti þess að þetta svari spurningu hæstv. forseta en ráðuneytið hefur áður svarað þessu í því bréfi sem ég vitnað hér til.