Veiðiheimildir smábáta
Mánudaginn 17. desember 1990


     Stefán Valgeirsson :
    Virðulegi forseti. Ég kem ekki til þess að tala langt mál hér. Mér hefur fundist
hæstv. sjútvrh. svara fáu af þeirri gagnrýni sem fram hefur komið. Það kann að vera að ráðherranum hafi fundist að ekki væri komið með nógu beinar spurningar til hans og hann gæti af þeim ástæðum komið sér hjá að svara þeim. Ég er með þrjár spurningar sem mig langar til að bera fram hér, með leyfi hæstv. forseta.
    1. Telur hæstv. sjútvrh. að eðlilega sé staðið að kvótaúthlutun, t.d. til þeirra staða sem eingöngu lifa á sjávarfangi svo sem Grímsey, Bakkafjörður, Borgarfjörður eystri og aðrir sambærilegir staðir?
    2. Mun hæstv. ráðherra beita sér fyrir að lög um stjórn fiskveiða sem taka gildi um næstu áramót verði endurskoðuð í janúarmánuði nk. með það í huga að lögfesta síðan brtt. fyrir þinglok?
    3. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar 1988 var því heitið að mörkuð yrði fiskvinnslustefna á þessu kjörtímabili. Mun hæstv. ráðherra leggja fram á Alþingi frv. um fiskvinnslustefnu eftir áramótin og beita sér fyrir að slíkt frv. verði lögfest fyrir þinglok í vetur?
    Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Það er búið að ræða þessi mál að mér sýnist í botn að öðru leyti en því að hæstv. ráðherra hefur ekki svarað spurningum, bæði frá mér og öðrum, sem kannski hafa ekki verið beint settar fram og þess vegna, eins og ég sagði í upphafi, hafi ráðherrann ekki séð ástæðu til að svara.