Veiðiheimildir smábáta
Mánudaginn 17. desember 1990


     Guðmundur H. Garðarsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil bæta nokkru við það sem fram hefur komið í þessari umræðu vegna þess að komið hefur verið inn á atriði sem er mjög viðkvæmt í allri umræðu sem er verðlagningin, þ.e. verðið á kvótanum. Það hefur m.a. verið sagt að í þeirri stöðu allri sem við erum í í sambandi við kvótann, þá verði hinn sterki ofan á og spjótunum hefur verið beint mikið að þeim aðilum sem bera ábyrgð á því að gera út á Íslandi og reka íslensk fiskvinnslufyrirtæki. Ég set vinnsluna og veiðarnar undir sama hattinn þegar ég fjalla um þessi atriði sem hér koma á eftir, virðulegi forseti, vegna þess að í þeim efnum eru allir á sama báti.
    Það sem skiptir auðvitað máli er að gera sér grein fyrir því hvernig þróunin hefur orðið, annars vegar í sambandi við veiðarnar, og þar með kvótann, og svo hins vegar hvað hefur verið að gerast í kringum okkur og jafnvel hjá okkur sjálfum í sambandi við verðmyndun. Verðmyndun á kvóta verður ekki til vegna þess að maður fær heimild til að veiða fisk heldur verður verðmyndun til við það að maður er að framleiða vöru sem eftirspurn er eftir. Og þá kem ég að því atriði, til þess að hafa þetta í sem stystu máli og reyna að vera kjarnyrtur, það er þetta atriði, hvernig verðmyndun verður á þeirri vöru sem maður er að framleiða. Á sama tíma og við Íslendingar fórum inn í kvótakerfið, þar sem við vorum tilneyddir, úr hinu svokallaða frjálsa kerfi, þegar menn gátu gert út og veitt eins og þeir mögulega gátu með þeim skipum sem þeir höfðu ráð yfir, á sama tíma sem við erum að fara inn í þetta kerfi vegna þess hvernig fiskstofnarnir voru orðnir í ársbyrjun 1984, þá gerist það á hinum endanum, þ.e. þar sem verðmyndun verður í sambandi við sölumálin og vinnsluna, að á sama tíma sem við förum inn í skömmtunarkerfi í veiðunum er byrjað að þróa Íslendinga inn í hið svokallaða frjálsa kerfi í sambandi við sölu þeirra afurða sem hér um ræðir. Það gerir það að sjálfsögðu að verkum að í skömmtunarfyrirkomulagi eins og er á kvótanum og við þær aðstæður sem voru að verða hjá öðrum fiskveiðiþjóðum, jafnframt því sem Vestur-Evrópa styrkist mikið efnahagslega, þá gerist það eins og hendi er veifað að við það losnar um hin skipulögðu bönd sem voru á vinnslu og sölu afurðanna í nánum tengslum við útgerðina, þá opnuðum við fyrir algert frelsi fyrir aðra aðila sem hafa ekki sömu ábyrgðarskyldur gagnvart því sem við erum að fjalla um eins og þeir höfðu sem réðu yfir þessu kerfi öllu í heild af hálfu Íslendinga fyrir 1. jan. 1984, þ.e. veiðarnar, vinnslan og salan.
    Við það eitt að stofna uppboðsmarkað á Íslandi er verið að opna fyrir þann möguleika að menn bjóði í fiskinn með öðrum hætti en áður tíðkaðist. Þetta þekkja hv. þm. vel og er einfalt mál. En með því að fara inn á uppboðsmarkaðskerfið erum við jafnframt að raska þeim grundvelli sem verðlagning á fiski hafði hvílt á í áratugi og við erum komin með mismunandi verð eins og við vitum í sambandi við það hvað menn fá fyrir sinn fisk upp úr sjó. Það er uppboðsmarkaðsverð hérlendis, það er uppboðsmarkaðsverð erlendis, það er ákveðin yfirborgun á það verð sem ákveðið er í verðlagsráði o.s.frv. Ég ætla ekki að fara út í þetta allt saman. Allt þetta er að mínu mati þess eðlis að þegar við förum inn í kvótann, inn í skömmtun, þá er stefnt inn í aukið frjálsræði í sölunni. Þar með er búið að opna leiðina fyrir fjármagnið með öðrum hætti en áður þekktist. Auðvitað er fjármagnið fyrir hendi í allri þessari innri uppbyggingu sem útgerð, fiskvinnsla og sölusamtökin voru að sjálfsögðu. En það eru opnaðar nýjar leiðir, opnaðar aðrar dyr fyrir aðila sem höfðu mikla þörf fyrir þennan fisk, þessa vöru sem við Íslendingar vorum að veiða og var skömmtuð og það voru Vestur - Evrópubúar. Segja má að Íslendingar hafi í þeirri stöðu sem við vorum að þróast í, líka vegna annarra og breyttra kringumstæðna, verið að missa tökin á þessu í ákveðnum skilningi að mínu mati sem yrði of langt mál að fara út í hér á þessum fundi. En við misstum tökin að minni hyggju að því leyti að við opnum þarna möguleika fyrir aðila sem hafa ekki sömu skyldur við þá atvinnugrein sem við erum að fjalla um og ekki heldur við það umhverfi sem við lifum í sem er númer eitt og tvö í sambandi við sjávarútveg og fiskvinnslu, strjálbýlið, þ.e. við opnum hér leið fyrir hið harða lögmál, markaðslögmál samkeppninnar. Og þar kemur hið nýja fjármagn inn í þetta sem hefur verðmyndast með þeim hætti sem m.a. hv. 4. þm. Norðurl. e. var að fjalla um.
    Það er þetta sem mér finnst skipta máli og ég veit að þetta er mjög viðkvæmt mál í allri umræðu því hún snertir það grundvallaratriði í hugsjónum flokkanna, þar á meðal míns flokks, sem er frelsi fjármagnsins. Nú er ekki lengur um að ræða frelsi heildsala til að flytja út. Nú er það frelsi fjármagnsins til þess að fá að vera aðili með öðrum hætti en við höfum þekkt áður. Og þá kemur að þessu sem skiptir auðvitað höfuðmáli og ég tel að hafi ráðið mestu um hvar við erum stödd þegar við erum að tala um kvótann og kvótakerfið, verðlagningu á kvótanum og stöðu
einstakra fyrirtækja úti í strjálbýlinu og einnig annarra fyrirtækja sem við höfum talið vera stór hingað til á íslenskan mælikvarða. Hvaðan kemur fjármagnið? Hvaðan kemur þetta fjármagn? Hvaðan koma þessi áhrif sem valda því að einn hv. þm. segir hér: Vita hv. þm. ekki að núna er kvótinn seldur á 160 kr. kílóið? Ég geri ráð fyrir að hann hafi átt við þorskkvótann.
    Í framhaldi af þessu kemur svo náttúrlega þetta, sem ég er að reyna að svara fyrir mitt leyti, hvernig verðmyndunin verður. Hún verður með þeim hætti að fjármagnið kemur annars staðar frá, eftirspurnin kemur með öðrum hætti inn í allt þetta dæmi sem hefur það í för með sér að vegna breyttra markaðsaðstæðna, breyttrar eftirspurnar og breyttrar stöðu, þá erum við komin inn í allt annað umhverfi en við áttum von á þegar kvótinn var innleiddur árið 1984. Og það er kjarni málsins sem ég ætla ekki fara út í hér á þessu stigi að ræða, því það er ekki tími til þess, og

þá mundi ég gera þá kröfu eins og hv. 4. þm. Norðurl. e. gerði hér áðan, að það væru fleiri þingmenn staddir hér í salnum til að hlusta á það þegar þeir þingmenn og hæstv. sjútvrh. og væntanlega einhver annar hæstv. ráðherra mundu mæta hér og ræða þetta út frá þessari forsendu sem er grundvallaratriði, algjört grundvallaratriði. Þetta er það sem skiptir máli að gera sér grein fyrir og kryfja til mergjar. Og þegar maður hefur gert það, þá verða hv. þm. og íslenskir stjórnmálamenn að gera það upp við sig hvernig við ætlum að lifa í þessu landi sem Íslendingar í nánustu framtíð.
    Við þurfum sem sagt að gera okkur grein fyrir hinu breytta umhverfi, ekki bara hér innan lands heldur hinu gjörbreytta umhverfi og gjörbreytta heimi sem við stöndum frammi fyrir í sambandi við stöðu okkar Íslendinga og það hvernig við ætlum að standa sem þjóð á okkar eigin forsendum, og þá er sjávaraflinn grundvallaratriði. (Gripið fram í.) Það kemur auðvitað inn í umræðuna.
    Í stuttu máli sagt, virðulegi forseti, hefur það gerst sem ég var að reyna að lýsa hér í stuttu máli í sambandi við umhverfisbreytinguna, þegar kvótinn kemur og frjálsræði í útflutningnum og allt það sem því fylgir, breyttar aðstæður í Austur - Evrópu og aukin eftirspurn eftir fiski, hvort sem það er saltfiskur, ísfiskur eða annað, plús það að erlendir aðilar sjá þarna möguleika til þess að komast inn, ég vil segja í íslenska útgerð með óbeinum og beinum hætti. Það hefur einnig gerst. Það ætla ég ekki að ræða frekar á þessu stigi, það skal ég gera í miklu, miklu ítarlegra máli síðar, og þá er ég kominn að því sem skiptir líka höfuðmáli, þ.e. ekki bara kvóti, heldur hvernig ætlum við Íslendingar að standa sjálfir að því að reka okkar eigin fiskvinnslufyrirtæki, okkar eigin sölufyrirtæki og hafa þann hámarkshagnað af allri þessari starfsemi eins langt og mögulegt er út á markaðina, sem næst neytendunum? Þá er hin stóra spurning: Hvaðan kemur fjármagnið? Kemur það fyrst og fremst erlendis frá? Kemur það að hluta til hér innan lands frá eða höfum við misst tökin á því að tryggja það að svo sé?