Veiðiheimildir smábáta
Mánudaginn 17. desember 1990


     Guðmundur H. Garðarsson :
    Virðulegi forseti. Út af þessum ummælum hv. þm. Skúla Alexanderssonar vil ég aðeins geta þess að það sem ég átti við, og hélt að hv. þm. hefði nú skilið, var að út frá sjónarmiði þeirra þjóða sem við eigum samskipti við þá er Ísland jaðarsvæði í efnahagslegum skilningi. Ég vona að hv. þm. hafi áttað sig á því.