Frsm. félmn. (Jóhann Einvarðsson) :
Hæstv. forseti. Það sem ég hygg að hv. 2. þm. Norðurl. e. eigi við er bréf frá fjmrn. sem sent var öllum innheimtumönnum ríkissjóðs þar sem þeim er uppálagt að innheimta ekki stimpilgjöld af þessum lánssamningum heldur taka einungis fyrir þeim tryggingu ef svo skyldi fara að þetta frv. yrði ekki samþykkt. Ég setti sjálfur eintak af þessu bréfi fyrir helgi í pósthólf allra þingmanna hér í deildinni og einnig í fjh. - og viðskn. þannig að ég hygg að hv. ræðumaður hafi þegar fengið þetta í hendur hafi hann litið í pósthólfið sitt.