Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Mánudaginn 17. desember 1990


     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. meiri hl. fjh.- og viðskn. á þskj. 316 um frv. til laga um sérstakan skatt á verslunar - og skrifstofuhúsnæði, en meiri hl. skipa ég ásamt Jóhanni Einvarðssyni, Skúla Alexanderssyni og Eiði Guðnasyni.
    Hér er um að ræða árlegt frv. sem er lagt fyrir þingið, jólaglaðning til handa þeim sem eiga verslunar - og skrifstofuhúsnæði um að þeim beri að greiða sérstakan 1,5% skatt af húsnæðinu miðað við fasteignamat. Þetta er engin ný skattheimta. Það hefur viðgengist um árabil að þessir aðilar greiði þennan skatt og á þeim forsendum mæli ég með samþykkt frv. og aðrir sem undir nál. skrifa. Nál. er mjög stutt og hljóðar svo:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur meiri hl. hennar til að það verði samþykkt.``