Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Mánudaginn 17. desember 1990


     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson) :
    Virðulegi forseti. Mér láðist í fyrri ræðu minni að geta þess að Guðrún J. Halldórsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu þessa máls og biðst ég afsökunar á því að hafa ekki lesið allt nál. í upphafi.
    Ég vil að síðustu aðeins minna hv. 2. þm. Norðurl. e. á það að hann var nú sá sem mælti hér fyrir þessu frv., alla vega í eitt ár, og þá ekki um 1,5% heldur um 2,2%.