Málefni aldraðra
Þriðjudaginn 18. desember 1990


     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason) :
    Virðulegur forseti. Ég skal ekki lengja þessa umræðu mikið en vil aðeins segja nokkur orð vegna ræðu hv. 14. þm. Reykv. Það er auðvitað rétt hjá honum að hér er verið að gera grundvallarbreytingu á hlutverki sjóðsins. Verið er að tala um að hann hafi heimild til að veita tímabundið rekstrarfé til stofnana. Og þá vil ég aftur undirstrika, það hefur kannski ekki komið nógu skýrt fram hjá mér áðan, að við erum að tala um innan hvers fjárlagaárs, vegna þess að ekki er gert ráð fyrir því í fjárveitingu til sjúkratryggingadeildar Tryggingastofnunar ríkisins að þar sé svo og svo mikið af óráðstöfuðum fjármunum sem nýttir verði e.t.v. ef nýjar stofnanir koma í gagnið, eða ef breyta þarf rekstri stofnana. Hér er því vissulega um mikla breytingu að ræða. Ég tel ekki ástæðu til að óttast það sem fram kom hjá hv. þm. að gert verði ráð fyrir að sjóðurinn standi áfram undir rekstri þeirrar stofnunar sem komið er á fót á hverjum tíma heldur komi rekstur hennar á næsta ári undir sjúkratryggingadeildina enda sé sjóðurinn þá tilbúinn til að aðstoða við að koma öðrum stofnunum af stað á næsta ári þar á eftir.
    Hér er aðeins gert ráð fyrir að heimilt sé að veita allt að þriðjungi af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins til rekstrarverkefna. Það eru á því takmörk að upphæðin fari ekki upp fyrir það. Hugsanlega nýtist ekki öll sú upphæð þannig að síðar gætu verið tök á að úthluta til framkvæmda meira heldur en gert er ráð fyrir, þ.e. 2 / 3 hlutunum.
    Jafnframt kom fram sú hugmynd eftir að frv. var dreift að auk þess sem segir í síðustu mgr. 1. gr., að það sé 3. og 4. tölul. sem eigi að falla undir þetta rekstrarfé sé það einnig 5. tölul. frv. Það verði því 3. tölul., sem fjallar um heimaþjónustuna, 4. tölul., sem fjallar um tímabundið rekstrarfé, og 5. tölul., sem fjallar um önnur verkefni sem sjóðstjórn kann að ákveða, en þau verkefni hafa hingað til verið smávægilegir styrkir til rannsókna og annarra slíkra hluta og hafa verið sáralágar upphæðir og ekki haft teljandi áhrif á heildarfjárveitingar sjóðsins til framkvæmda sem neinu nemur. Allir þessir þrír liðir falli undir þetta ákvæði um að það sé aðeins allt að 1 / 3 hluta af árlegu ráðstöfunarfé sem veita megi til þessara verkefna. Og svo vil ég rétt til upplýsinga nefna það að í fjárlögum ársins í ár, 1990, eru 197 millj. kr. til ráðstöfunar til framkvæmdanna. Í frv. til fjárlaga fyrir næsta ár er gert ráð fyrir 240 millj. kr., sem er allveruleg hækkun umfram verðlag þó að vissulega hefði hún mátt vera enn hærri og hefði þurft að vera það hefði átt að verða við öllum óskum og þörfum til framkvæmda, en þó er hér um verulega hækkun að ræða og síðan allt að 1 / 3 hluti í viðbót, 120 millj. kr., sem ættu að koma í sjóðinn, sem er áætluð tekjuöflun af skattinum á næsta ári. Það kæmi þá til viðbótar þessum 240 millj. kr. þannig að í sjóðnum yrði 360 -- 370 millj. kr. Allt að 1 / 3 hluta þess fjár væri síðan heimilt að ráðstafa til rekstrarverkefnanna eins og

frv. þetta gerir ráð fyrir. Ég vil aðeins til áréttingar láta þetta koma hér fram, herra forseti.