Launamál
Þriðjudaginn 18. desember 1990


     Guðmundur Ágústsson :
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa langt mál um það frv. sem hér er til umræðu, frv. til laga um launamál eða réttara sagt til staðfestingar á bráðabirgðalögum sem sett voru í sumar. Það sem þarf í fyrsta lagi að athuga þegar svona lög hafa verið sett er setningarmátinn. Ég tel rétt að fara almennum orðum um það hvernig útgáfu þessara laga bar að og skýra þá afstöðu sem ég hef tekið varðandi efnisinnihald þeirra.
    Ég hef gegnum tíðina verið mjög á móti því að sett skuli bráðabirgðalög og tel þar vera um einræðislega stjórnarhætti að ræða. En þannig er því miður í okkar stjórnkerfi að þessi möguleiki hefur verið allt of rúmur og menn á Alþingi ekki verið tilbúnir að breyta þessu, sama hvaða stjórn og sama hvaða flokkar eru við völd. Að kenna þessari ríkisstjórn sérstaklega um er ekki rétt. Allar ríkisstjórnir sem hér hafa setið hafa með einum eða öðrum hætti gripið til bráðabirgðalagasetningar á milli þinga. Þau lög sem nú eru til umræðu eru í sjálfu sér ekkert frábrugðin öðrum lögum sem sett hafa verið nema að einu leyti til, þ.e. að nú eru sett lög á dóm sem kveðinn hefur verið upp og sett á kjarasamning sem gerður var af ákveðinni ríkisstjórn. ( EgJ: Er það ekki nokkur breyting?) Það að gripið var til bráðabirgðalagasetningar er að mínu viti ekki neitt athugavert þegar nauðsyn krefur eins og var í þessu tilviki. Hins vegar skal ég fara nokkrum orðum yfir það sem hv. þm. Egill Jónsson minnti mig á. Var það óvenjulegt ástand að þarna voru sett lög á dóm?
    Við skulum fara yfir söguna eins og hún var. Það var gerður samningur milli ríkissjóðs, fjmrh. og BHMR þar sem Bandalagi háskólamanna er lofuð ákveðin kauphækkun á ákveðnum tíma. Aðallega er tekist á um það eftir nokkurt verkfall hvernig ein ákveðin grein skuli orðuð, það var 1. gr. samningsins. Mönnum ber ekki saman í dag um það hvernig túlka átti þessa grein og tilefnið hefur farið nú til dómstóla, hvernig túlka á 1. gr. samningsins. Ég geri ráð fyrir því að báðir samningsaðilar hafi verið í góðri trú, að þeir hafi haft sinn skilning á málinu. Þegar kemur að því að þjóðarsáttin umtalaða er gerð í febrúarmánuði eru uppi ýmsar hugmyndir um það hvernig beri að túlka þessa 1. gr. samningsins og báðir leggja áfram sína meiningu í það um hvað hafi verið samið. Þrátt fyrir ábendingar ýmissa aðila er gerður kjarasamningur milli flestra aðila vinnumarkaðarins, annarra en BHMR, bænda og banka og þjóðarsáttin kemst á.
    Þegar fyrsta kauphækkun átti að koma til framkvæmda hjá BHMR ber þar svo við að ríkisvaldið segir að þess túlkun sé rétt og sama segir BHMR. Málið fer fyrir Félagsdóm, sem sannarlega er æðsta vald í málefnum af þessu tagi. Félagsdómur kemst að þeirri niðurstöðu einróma að það beri að túlka samninginn BHMR í hag. Við þennan dómsúrskurð skapast verulegt óvissuástand. Þá er spurningin: Hvað á að gera?
Átti að láta allt fara hér í bál og brand, eins og ég

held að enginn efist um að mundi hafa gerst ef þessi hækkun hefði komið til framkvæmda, eða átti að setja bráðabirgðalög til að koma í veg fyrir að þetta samningsákvæði héldi gildi sínu? Og raunar má segja að lög hafi verið sett á forsendur samningsins en ekki dóminn, alla vega er niðurstaðan sú að hækkunin umtalaða kom ekki til framkvæmda. Um það snúast þessi staðfestingarlög sem nú er verið að ræða um.
    Að mínu viti var þetta réttlætanleg ákvörðun með tilliti til þess sem áður hafði gerst í stjórnskipun og stjórnarfari hér á landi, að bráðabirgðalög hafi verið sett oft af miklu minna tilefni. Ég minnist þess meira að segja að það voru sett bráðabirgðalög til að koma í veg fyrir að einn aðili gæti verið skipaður í ákveðna stöðu hjá ríkinu.
    Þetta er sá grunnur sem lögin eru byggð á. Ég hefði kosið að hæstv. forsrh. væri hér en ég skal hinkra með spurninguna sem ég ætlaði að leggja fyrir hann þangað til hann birtist í salnum. Það sem mig langar að vita, og spyr þá forsrh. aftur, er um þær fullyrðingar hans að tíu lögfræðingar hefðu farið yfir 1. gr. samningsins og allir verið á sama máli um að hún stæðist, en síðan hefðu fimm dómendur verið í Félagsdómi og þeir hefðu allir verið á þveröfugri skoðun. Mér finnst nokkuð furðulegt ef þetta er rétt. Þó að lögfræðingum beri oft á milli þá er það nú ekki alveg með þessum hætti.
    Þetta er, eins og ég sagði áðan, grundvöllur þessara bráðabirgðalaga og það sem á að fást staðfest nú hér á Alþingi. Mín afstaða hefur alltaf verið skýr í þessu máli. Ég lagði fram tillögur um það í mínum þingflokki í sumar þegar kom til álita að setja bráðabirgðalög að við mundum standa að þeirri bráðabirgðalagasetningu og koma í veg fyrir að hér færi allt í upplausn. Og að sjálfsögðu, þótt ég hafi nú skilið við þessa ríkisstjórn, stend ég jafneinarður á bak við þá ákvörðun nú og ég gerði þá og tel raunar að það væri mikil synd ef þessi bráðabirgðalög féllu úr gildi.
    Hins vegar má alltaf um það deila hvort þessi bráðabirgðalög og hvort það ástand sem nú ríkir hafi leitt þjóðina til góðs. Þó svo að verðbólga hafi náðst niður fyrir 10% og þó að kominn sé á ákveðinn stöðugleiki, þá eru öll vandamálin sem voru enn þá fyrir hendi. Það kraumar mjög undir og menn vita ekki almennilega hvað tekur við þegar þessu þjóðarsáttartímabili lýkur. Og ég verð að segja það eftir að hafa hlustað á marga málsmetandi menn koma fyrir fjh. - og viðskn. Ed. á undanförnum dögum að mér sýnist ástandið ekki vera mjög björgulegt, því miður. Það er rétt sem fram kom í ræðu hv. 2. þm. Norðurl. e. að raunvextir hafa hækkað hér umtalsvert á þessu þjóðarsáttartímabili en það var eitt af meginatriðunum þegar minn flokkur gekk til stjórnarsamstarfs við núverandi stjórnarflokka að lækka vexti, ekki nafnvexti aðeins heldur raunvexti. Og það er rétt sem fram kom í hans máli að fulltrúar Seðlabankans og Þjóðhagsstofnunar spá því að á næsta ári verði útlánsvextir í bankakerfinu 8,5% og segja raunar að aðalástæðan fyrir þessu háa raunvaxtastigi sé hvað ríkissjóður sé

kræfur á fé landsmanna. Ríkissjóður ætlar sér um 50% af lánsfjármarkaðinum á næsta ári þegar allt er tekið. Það ástand gat gengið á þessu ári, segja þeir, en ef tilgangurinn er sá að byggja upp atvinnulífið á nýjan leik og veita meira fé til atvinnuuppbyggingar og fyrirtækin sækja inn á lánamarkaðinn, þá megi búast við því að raunvextir hækki enn frekar. En ég ætla að bíða með umræðu um lánsfjárlög þangað til á morgun, en hér verður þá umræða um lánsfjárlög fyrir árið 1991.
    Ég varpaði þeirri spurningu fram hér áðan, hæstv. forsrh., hvernig gæti á því staðið og hvort það væri réttur skilningur minn á þínum orðum að þú hafir fengið tíu aðila, lögfræðinga, hámenntaða lögfræðinga til þess að athuga 1. gr. samningsins við BHMR og allir haldið því fram að það stæðist, en síðan hafi fimm aðilar í Félagsdómi komist að þveröfugri niðurstöðu. Ef þetta er rétt verð ég að segja að þú ættir að fá einhvern annan aðila þér við hlið. En það mátti að vísu lengi vel ekki sjá á milli hvort túlkun ríkisvaldsins eða BHMR á 1. gr. var rétt.
    Ég ætla ekki að fara miklu fleiri orðum um þetta mál en vildi að það kæmi fram að mín skoðun væri óbreytt, ég kem til með að styðja þetta frv. Ég tel raunar æskilegt að þingið taki strax á frv. um bráðabirgðalög og ljúki afgreiðslu þess og geri að lögum á sem stystum tíma. Ég hefði kosið að hægt hefði verið að afgreiða þetta mál nú fyrir áramót og hafa ekki svona mál á bakinu fram eftir vori. En ég er sammála því að þarna hafi verið ill nauðsyn á setningu þeirra og tel að þær mótbárur sem settar hafa verið fram af hálfu BHMR séu ekki réttmætar. Ég held að áður hafi verið tekið á þessum málum, á þessum málsástæðum sem þeir bera fyrir sig, fyrir dómi og dómstóll fallist á það að bráðabirgðalöggjafinn hafi haft þetta vald. Það er bráðabirgðalöggjafinn sem metur nauðsynina, hvort þessi brýna nauðsyn sem kveður á um í stjórnarskrá hafi verið fyrir hendi eða ekki.
    En ég ætla ekki, eins og ég sagði áðan, að fjölyrða um þetta mál öllu frekar. Ég vildi aðeins láta þessa skoðun mína koma fram og vonast eftir að hæstv. forsrh. upplýsi um þetta atriði svo maður fái að vita hvers konar ráðgjafa hann hafi sér við hlið.