Stjfrv. um tryggingagjald
Þriðjudaginn 18. desember 1990


     Friðrik Sophusson :
    Virðulegi forseti. Ég vil gjarnan ræða hér um 3. dagskrármálið í dag, tryggingagjald, af sérstökum ástæðum og með tilvísun til 20. gr. þingskapa. Í þeirri grein segir að við 1. umr. skuli ræða frv. í heild. Að þeirri umræðu lokinni er ætlast til að leitað sé atkvæða um það hvort það eigi að ganga til 2. umr. og nefndar. Það mun vera venja í þinginu samkvæmt þingsköpum að fyrst fari fram 1. umr., síðan gangi mál til nefndar og þar sé málið skoðað og komi síðan aftur til deildarinnar. Þá fari fram 2. umr. og síðan hin þriðja.
    Í gær var stjfrv. um tryggingagjald lagt fram, sem er 233. mál þingsins. Það er ætlunin, virðulegur forseti, að mælt verði fyrir þessu máli í dag. Þetta frv. er samið af svokallaðri fyrirtækjaskattanefnd, sem fjmrh. setti á laggirnar til þess að undirbúa samræmingu á sköttum fyrirtækja hér á landi og í Evrópu. Niðurstaða þeirrar nefndar lá fyrir í síðasta mánuði en virðist ekki hafa verið kynnt einstökum aðilum í atvinnulífinu. M.a. hefur komið fram að bændasamtökin hafa ekki séð frv. fyrr en nú.
    Frv. er lagt fram í þeim búningi að gjaldflokkar tryggingagjaldsins á næsta ári verða tveir, annars vegar 2,5% og hins vegar 6%. Þetta þýðir að skattheimtan eykst um 500 millj. kr. Í frv. fyrirtækjaskattanefndarinnar var gert ráð fyrir því að gjaldflokkarnir yrðu tveir, annars vegar 2,5% og hins vegar 5,5%.
    Sjálfstfl. féllst á að taka málið til umræðu í fjh.- og viðskn. áður en málið var lagt fram á Alþingi. Þetta var gert með þeim hætti að fulltrúar flokksins í fjh.- og viðskn. samþykktu að verða við því að ræða málið í hv. nefnd áður en mælt var fyrir því og reyndar áður en málið var lagt fram á Alþingi. Þetta er auðvitað afar óvenjulegt en var gert í því skyni að greiða fyrir þingstörfum. Ég minnist þess reyndar ekki að það hafi gerst áður að mál hafi verið rætt áður en það var lagt fram á þingi en það var gert að þessu sinni. Enda var það álit hæstv. ríkisstjórnar að það lægi verulega á afgreiðslu málsins. Nú hefur hv. nefnd rætt þetta mál á tveimur fundum sínum, þeim fyrri í gærmorgun, þeim seinni núna í morgun. En sá fundur var kl. 9. Á fundinn í morgun komu nokkrir aðilar úr atvinnulífinu sem höfðu fengið frv. í sínar hendur í gærkvöldi seint. Óskuðu flestir þeirra eftir að fá að skoða frv. betur og varð nefndin við því.
    En það er annað, virðulegur forseti, sem kom fram og það er ástæðan fyrir því að ég bið hér um að fá að ræða um þingsköp. Á fundinum í morgun upplýsti formaður nefndarinnar, hv. 1. þm. Norðurl. v., að um þetta frv. væri ekki einhugur í hæstv. ríkisstjórn. Að sögn formanns nefndarinnar mun hæstv. sjútvrh. hafa talið að frv. ætti ekki að birtast í þeim búningi sem það er og líkast til hefðu orðið mistök í prentun því að hæstv. sjútvrh. hefði sagt frá því á fundi Framsfl. í gær að ekki hefði verið ætlunin að prenta frv. með ákvæðum til bráðabirgða sem tiltaka að á árunum 1992 og 1993 eigi gjaldið að jafnast á milli atvinnugreina. Þetta þýðir það, virðulegur forseti, að ekki er

nokkur leið að vinna áfram í þessu frv. og varla verður séð að hægt sé að mæla fyrir því fyrr en það er upplýst hvort hér sé á ferðinni stjfrv. í eiginlegri merkingu orðsins. Auðvitað kann það að vera svo að prentararnir í Gutenberg hafi tekið að sér að semja tvö bráðabirgðaákvæði við þetta frv. Þar eru vanir menn á ferð og sem þekkja mjög vel til löggjafarstarfseminnar en ég efast samt um það að prentararnir þar hafi tekið þessi mál í sínar hendur heldur hafi það verið með vilja gert af hálfu fjmrn. og hæstv. fjmrh. að birta frv. með þeim hætti sem það er gert.
    Það hlýtur að vera krafa Alþingis að þegar frv. kemur fram sé það í þeim búningi að hægt sé að tala um það sem stjfrv. Þess vegna vil ég, hæstv. forseti, fá úr því skorið af hálfu hæstv. fjmrh. og eins af hálfu hæstv. ráðherra Framsfl. Ég sé að hæstv. sjútvrh., sem reyndar á sæti í Ed., er ekki hér staddur en það eru tveir hæstv. ráðherrar flokksins mættir, annar þeirra er hæstv. forsrh. Úr þessu þarf að fást skorið því þessar upplýsingar lágu fyrir á fundi í morgun og um þetta urðu umræður í áheyrn m.a. fulltrúa bændasamtakanna.
    Ljóst er, virðulegi forseti, að sú málsmeðferð og sá ágreiningur sem hefur komið upp innan stjórnarliðsins hér á hinu háa Alþingi gerir það að verkum að ekki verður hægt að afgreiða þetta mál fyrir jól, ekki nema þing standi fram á aðfangadag. Þetta vildi ég að fram kæmi hérna um leið og ég óska eftir því að fram komi skýringar á þessu og hvort það sé rétt að frv. sé rangt prentað eða hvort það sé rétt sem stendur í frv. og það sé stjfrv. sem hafi verið lagt fram í gær og á að mæla fyrir í dag og það eigi að vera eins og það er prentað á þskj. 335.