Stjfrv. um tryggingagjald
Þriðjudaginn 18. desember 1990


     Páll Pétursson :
    Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu. Það er rétt hjá hæstv. fjmrh. að við höfum séð frv. í þessum búningi, en það var samþykkt í þingflokki Framsfl. með því fororði að einu atriði yrði breytt. Það atriði skiptir hins vegar engu máli hvað varðar skattheimtu næsta árs, þ.e. 1991. Um hana er fullt samkomulag og það er náttúrlega meginatriðið. Það er hins vegar að okkar mati eðlilegt að geyma til síðari tíma ákvörðun um fulla samræmingu þar til niðurstaða er fengin í meðferð aðstöðugjaldsmálsins, og forsrh. hefur lýst hér áður í þessari umræðu afstöðu Framsfl. til þess máls.