Stjórnarráð Íslands
Þriðjudaginn 18. desember 1990


     Þorsteinn Pálsson :
    Herra forseti. Ég tek undir það að ástæðulaust er að endurtaka þær miklu deilur sem áttu sér stað mánuðum saman á síðasta þingi um það frv. til breytinga á stjórnarráðslögum sem þá var til meðferðar og fól í sér fjölgun ráðuneyta, til þess að efna hrossakaupasamning sem gerður var um atkvæði hér á hinu háa Alþingi til stuðnings hæstv. ríkisstjórn. Ég var og er þeirrar skoðunar að það hafi verið löngu tímabært að skipa umhverfismálum með ákveðnum hætti í Stjórnarráði Íslands, en taldi og tel enn að það megi gera án fjölgunar ráðuneyta og þess vegna hafi það frv. og sá málatilbúnaður allur stangast á við ríkjandi viðhorf um breytingar á Stjórnarráði Íslands. Fram hjá því verður ekki vikist, þó hæstv. forsrh. sé hreyknastur af því verki af öllu sem á daga hans hefur drifið í Stjórnarráðinu, að það var einhver mesta hrakfallasaga sem komið hefur fyrir hér í sölum Alþingis og ástæðulaust að fara lengra út í þann samanburð. En ef hún er það sem hæstv. forsrh. hreykir sér helst af þá er það allrar eftirtektar vert.
    Ég tek undir það á hinn bóginn varðandi þetta frv. að það eru ýmis rök sem mæla með því að þessi sameining verði gerð. En ég vil ítreka af minni hálfu að ég tel að rétt sé að bíða endurskoðunar í heild. Ætla má að það verk geti komið fyrir Alþingi fljótlega á nýju ári og fáist afgreitt á þessu þingi. Mín skoðun er sú að það sé nauðsynlegt að Alþingi hafi afgreitt það mál fyrir kosningar. Og þó hér sé um að ræða skynsamlega ráðstöfun þá kreppir ekki svo að í þessu efni að ekki megi bíða þessarar endurskoðunar. Ég óttast að ef menn fara fram með einstök mál af þessu tagi þá muni stóra verkefnið dragast á langinn og meginmarkmiðið týnast í bráðabirgðabreytingum af ýmsu tagi. Ég ítreka þess vegna ósk mína um þessa málsmeðferð.