Forseti (Árni Gunnarsson) :
Vegna orða síðasta ræðumanns þá vill forseti geta þess að hann lét svo um mælt að hann teldi að það hefði verið eðlilegt að leysa þetta mál utan þingsalar og þá helst fyrir þann fund sem nú stendur yfir.
Forseti lítur svo til eftir þá þingskapaumræðu sem fór fram að það hafi komið skýrt fram að hér er á ferðinni ríkisstjórnarfrv. þótt ágreiningur kunni að vera um einhverja einstaka þætti þess. Frv. uppfyllir öll þingleg skilyrði um að mega koma á dagskrá, bæði 18. gr. og 20. gr. þingskapa, og telur forseti því eðlilegt að málið fái þennan framgang. Í gær var fyrirhugað að taka þetta mál á dagskrá með afbrigðum en forseti féllst á það í góðri samvinnu við formenn þingflokka að því yrði frestað og málið kæmi hér á dagskrá í dag. Fleira hefur forseti ekki um þetta mál að segja.