Staðgreiðsla opinberra gjalda
Þriðjudaginn 18. desember 1990


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda sem er fylgifrv. með því frv. sem við ræddum hér áðan.
    Í frv. til laga um tryggingagjald er gert ráð fyrir að um upplýsingar og eftirlit fari eftir ákvæðum laga um staðgreiðslu opinberra gjalda. Jafnframt er gert ráð fyrir því að álagning tryggingagjalds fari fram samhliða álagningu tekjuskatts og eignarskatts. Af þessum sökum er nauðsynlegt að gera breytingar á lögunum um staðgreiðslu opinberra gjalda.
    Í 1. gr. frv. er kveðið á um það að staðgreiðsla tryggingagjalds sé bráðabirgðagreiðsla með sama hætti og staðgreiðsla vegna tekjuskatts og útsvars.
    Í 2. gr. kemur fram að lögin um staðgreiðslu taki einnig til tryggingagjalds eftir því sem við á eftir ákvæðum laga um tryggingagjald.
    Samkvæmt 3. gr. frv. er kveðið á um að endanleg álagning tryggingagjalds fari fram við álagningu opinberra gjalda að loknu tekjuári.
    Ég tel að frv. sé einfalt og meginefni þess ljóst og legg til að að lokinni 1. umr. verði því vísað til hv. fjh.- og viðskn.