Tekjuskattur og eignarskattur
Þriðjudaginn 18. desember 1990


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breyting á lögum um tekjuskatt og eignarskatt, nr. 75 frá árinu 1981. Í þessu frv. er kveðið á um nokkrar breytingar sem snerta skattlagningu einstaklinga í samræmi við það sem boðað er í fjárlagafrv. Breytingarnar miðast við að tryggja óbreytta skattbyrði einstaklinga milli áranna 1990 og 1991.
    Í fjárlagafrv. fyrir árið 1991 kemur fram sú meginviðmiðun að álagning tekjuskatta á einstaklinga á næsta ári skuli vera óbreytt í hlutfalli við heildartekjur þeirra frá því sem gildir árið 1990, þ.e. að skattbyrðin haldist óbreytt milli ára. Áætlað er að meðallaun á mann hækki um 8,5% á næsta ári og heildartekjur heimilanna um 10 -- 11%. Í samræmi við það er áætlað að tekjuskattur hækki um svipað hlutfall. Í þessu felst að helstu frádráttar - og afsláttarliðir tekjuskattskerfisins hækka í samræmi við laun á næsta ári, eða heldur meira en nemur hækkun lánskjaravísitölunnar milli ára.
    Árið 1990 er persónuafsláttur fyrir hvern einstakling 21.482 kr. að meðaltali á mánuði, en það jafngildir skattleysismörkum upp á 53.988 kr. á mánuði. Samkvæmt endurskoðaðri spá er reiknað með 8,5% meðalhækkun launa á næsta ári. Í samræmi við það hækkar persónuafsláttur nú um áramótin um 3,2%, úr 22.114 kr. í 22.831 kr. á mánuði fyrir fyrri hluta ársins og í rúmlega 23.800 á síðari hluta þess samkvæmt áætlaðri hækkun lánskjaravísitölu frá desember 1990 til júní 1991. Skattleysismörkin hækka um sama hlutfall og verða 58.600 kr. að meðaltali á næsta ári.
    Í fjárlagafrv. voru jafnframt boðaðar ýmsar aðrar breytingar sem ætlunin er að festa í sessi með þessu frv. Rétt er að vekja athygli á því að gert er ráð fyrir að skattvísitala verði ákveðin 109,5 stig í fjárlögum 1991 miðað við 100 stig 1990. Allar fjárhæðir sem tengdar eru skattvísitölu í lögum um tekju - og eignarskatt munu því hækka um 9,5% á næsta ári. Hækkun fasteignamats milli ára er hins vegar 12%. Þess vegna þykir rétt að hækka skattfrelsismörk eignarskatts sérstaklega í þessu frv. þannig að þau hækki um 12% á milli ára þegar þau hafa verið uppfærð með skattvísitölu. Sama gildir um eignarmörk vegna barnabótaauka og vaxtabóta.
    Á síðasta þingi voru samþykkt ný lögheimilislög og taka þau gildi 1. jan. 1991. Við gildistöku laganna skortir lagagrundvöll undir þá skattaframkvæmd sem ríkt hefur varðandi námsmenn sem tímabundið stofna til heimilis í öðru ríki en Íslandi. Til þess að tryggja að þessir skattþegnar haldi sínum skattalegu réttindum hérlendis á meðan á námi stendur erlendis eru lagðar til breytingar á 70. gr. laga nr. 75/1981. Er því lagt til að þessir aðilar geti þrátt fyrir 1. gr. laga nr. 75/1981 haldið öllum réttindum sem heimilisfesti hér á landi veitir samkvæmt þessum lögum og öðrum lögum um opinber gjöld.
    Samkvæmt núgildandi lögum eru markaðsbréf sem gefin eru út af ríkissjóði, ríkisvíxlar, happdrættisskuldabréf ríkissjóðs og húsbréf gefin út af Byggingarsjóði ríkisins undanþegin eignarskatti að uppfylltum vissum skilyrðum. Nú hefur verið ákveðið að setja á markað nýja tegund ríkisverðbréfa sem hafa hlotið nafnið ríkisbréf. Tilgangurinn með þessari útgáfu er m.a. að brúa bilið milli ríkisvíxla og spariskírteina, svo og að gefa kaupendum ríkisverðbréfa kost á meira úrvali af ríkisverðbréfum, bæði hvað varðar tímalengd og vaxtakjör.
    Rétt þykir til þess að taka af öll tvímæli á lagagrundvelli að taka orðið ríkisbréf inn í gildandi lög til þess að tryggja að sömu reglur gildi um ríkisbréfin eins og önnur markaðsbréf sem gefin eru út af ríkinu.
    Lagt er til í frv. að tryggð verði innheimta á vanskilum eftir álagningu opinberra gjalda vegna reiknaðs endurgjalds þeirra manna sem stunda sjálfstæðan atvinnurekstur, þ.e. í þeim tilvikum sem skattaðili hefur ekki staðið skil á fjárhæð þeirri sem skila átti í staðgreiðslu. Hér er kveðið á um það að álagningin skuli vera gjaldfallin 1. ágúst á því ári sem álagningin fer fram.
    Enn fremur er í frv. vikið að ákvæðum varðandi bætur til þeirra sem keyptu húsnæði á tilteknu tímabili sem verið hefur umfjöllunarefni hér á þingi fyrr í vetur, m.a. vegna fsp. frá hv. þm. Geir Haarde. Í þeirri umræðu lýsti ég því yfir að ég mundi leggja fyrir þingið tillögur til breytingar á þessum atriðum og er þær að finna hér í þessu frv.
    Virðulegi forseti. Ég mælist svo til þess að að lokinni 1. umr. verði þessu frv. vísað til hv. fjh. - og viðskn.