Danfríður Skarphéðinsdóttir :
    Virðulegur forseti. Það vakti óneitanlega með mér nokkra undrun að sjá það sem segir í 1. gr. þess frv. sem nú er til umræðu. ,,Dómsmrh. er heimilt að veita Landssambandi flugbjörgunarsveita og Skáksambandi Íslands leyfi til þess að starfrækja svonefnt sjóðshappdrætti``, eins og hér segir í 1. gr. frv. orðrétt, með leyfi forseta.
    Það er ljóst að að undanförnu hefur verið samstarf með þeim aðilum sem stunda björgunarstörf á Íslandi. Eru stærstu aðrir aðilar Landssamband hjálparsveita skáta og Slysavarnafélag Íslands sem eru reyndar hvort tveggja mun fjölmennari félög en flugbjörgunarsveitir sem eru sex talsins á landinu.
    Ég vil í tilefni af því samstarfi, sem hefur verið með þessum aðilum undanfarið og drög hafa verið lögð að að verði áfram, fá að lesa hér bréf til dómsmrn. frá Slysavarnafélagi Íslands og Landssambandi hjálparsveita skáta sem skrifað var 28. mars 1990. Í bréfinu segir, með leyfi forseta: ,,Þegar Landssamband hjálparsveita skáta, LHS, hrinti af stað skafmiðahappdrætti, Lukkutríói, síðla árs 1987 var það vilji þáv. dómsmrh., Jóns Sigurðssonar, að náð yrði samkomulagi milli björgunarfélaganna þriggja, LHS, Slysavarnafélags Íslands og Landssambands flugbjörgunarsveita, um þessa fjáröflunarleið. Náðist fljótlega samkomulag milli félaganna um sameiginlegan rekstur skafmiðahappdrættis. Lýsti þáv. dómsmrh. yfir mikilli ánægju með þá niðurstöðu.
    Samkomulag félaganna gerir ráð fyrir áframhaldandi samvinnu í fjáröflunarmálum. Hefur verið unnið að undirbúningi enn frekara fjáröflunarátaks fyrir félögin, eins og ráðuneytinu er kunnugt um. Samkomulagið gerir enn fremur ráð fyrir að aðilar fari ekki út í sambærilegar fjáraflanir án samráðs við samstarfsaðila sína. Flugbjörgunarsveitirnar hafa nú, ásamt Skáksambandi Íslands, sótt um leyfi ráðuneytisins fyrir nýrri gerð af happdrætti. Við vekjum athygli á að það væri að okkar dómi í ósamræmi við fyrri áherslur ráðuneytisins yrði flugbjörgunarsveitunum og Skáksambandi Íslands nú veitt slíkt leyfi.
    Með ósk um að málið verði ekki afgreitt án samráðs við samtök okkar.
     Virðingarfyllst, fyrir hönd Landssambands hjálparsveita skáta, Ólafur Proppé formaður. Fyrir hönd Slysavarnafélags Íslands, Haraldur Henrýsson forseti.``
    Ég vil í framhaldi af þessu bréfi og þeirri yfirlýsingu sem kemur fram í 1. gr. þessa frv. spyrja hæstv. dómsmrh. hvers vegna hann fari nú af stað með málið án þess að þessara aðila sé getið þar sem svo sterkar yfirlýsingar liggja fyrir um samkomulag og samstarf milli þessara aðila. Hvers vegna er málið lagt fyrir Alþingi án þess að hinir tveir aðilarnir, þ.e. Landssamband hjálparsveita skáta og Slysavarnafélag Íslands, séu þar með taldir? Hæstv. dómsmrh. sagði reyndar áðan í ræðu sinni að þessir tveir aðilar sem í frv. eru nefndir séu einungis upphafsaðilar þessa máls, eins og hann sagði orðrétt. Og hann leggur til að nefnd sú sem fær frv. til umfjöllunar athugi með

aðild fleiri samtaka. Ég spyr: Hvers vegna er flýtirinn svo mikill? Hvers vegna var ekki hægt að hafa þessa aðila með og hafa við þá samráð áður en frv. var lagt fram?
        Það er ljóst að mál þetta er ekki á forgangslista ríkisstjórnarinnar til afgreiðslu fyrir áramót þannig að við fáum nægan tíma til þess að athuga það í nefnd. Ég hef aðeins rætt um 1. gr. sem snertir þá sem eiga að fá að standa fyrir þessu happdrætti. Ég styð að sjálfsögðu heils hugar það að hingað til lands verði keypt björgunarþyrla sem getur þjónað okkar þörfum. Það mál hefur oft komið til umræðu á Alþingi og fyrir liggur nú á nýju þskj. tillaga um að keypt verði björgunarþyrla. Það er auðvitað spurning hvaða leiðir verða farnar til þess að fjármagna þau kaup. Að mínu mati hlýtur að teljast eðlilegt að ríkissjóður fjármagni kaup á björgunarþyrlu. Ég verð að segja eins og er að á tímum þjóðarsáttar er ég engan veginn viss um að fólk hafi svo mikið fé aflögu að mikils sé að vænta í peningahappdrætti sem þessu. Ef niðurstaðan verður sú að fara þessa leið til fjármögnunar yrði auðvitað að skoða nánar og reyna að gera sér grein fyrir hvers má vænta af þeim markaði sem við höfum. Eins og kunnugt er hefur t.d. með Happdrætti Háskólans verið gert átak í uppbyggingu Háskóla Íslands.
    Það er ljóst að öll félagasamtök eru í stöðugri fjáröflun og ýmsar leiðir hafa verið farnar. Björgunarsveitirnar hafa núna seinni árin sameinast um skafmiðahappdrættið og ég get ekki séð annað en að sams konar samstarf ætti að geta gilt varðandi rekstur sjóðshappdrættis sem hér er lagt til. Ég ítreka spurningar mínar til hæstv. dómsmrh.: Hvers vegna er málið flutt á þingi án þess að þeir aðilar sem hann nefndi og virtist telja sjálfsagt og eðlilegt að verði með séu hafðir með í ráðum? Í athugasemdum við lagafrv. segir: ,,Frv. þetta er byggt á samkomulagi Landssambands flugbjörgunarsveita og Skáksambands Íslands um rekstur happdrættis``. Ég vil spyrja hæstv. dómsmrh.: Hvers vegna voru hjálparsveitir skáta og Slysavarnafélag Íslands ekki aðilar að þessu samkomulagi?
    Ég ætla, virðulegur forseti, ekki að hafa fleiri orð um þetta mál í bili en það er ljóst að við eigum eftir að skoða það vel í allshn. enda fáum við væntanlega tíma til þess að senda það út til umsagnar og fá þær eftir áramótin.