Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson) :
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þær undirtektir sem hafa komið fram við þetta mál. Til mín er beint tveimur fyrispurnum, raunar þeirri sömu frá tveimur hv. þm. sem hér tóku til máls, hv. 6. þm. Vesturl. og hv. 4. þm. Vestf., um það hvers vegna ekki sé ákvæði í frv. um samstarf við Slysavarnafélag Íslands og Landssamband hjálparsveita skáta.
Eins og kom fram í framsöguræðu minni er skoðun mín sú að ég tel mjög eðlilegt að þessi tvö landssambönd komi einnig að þessu máli. Ástæðan fyrir því að þetta var ekki gert þegar í upphafi er sú að landssamböndin tvö sem tilgreind eru í frv. komu með hugmyndina að þessu samstarfi nokkuð mótaða, þó svo að hugmyndin um þyrluna hafi raunar síðar fæðst í ráðuneytinu og verið útfærð í nánara samstarfi þar við grunninn sem landssamböndin tvö lögðu að málinu. Auðvitað var mér fullkunnugt um samstarf þessara þriggja landssambanda, Slysavarnafélags Íslands, Landssambands hjálparsveita skáta og Landssambands flugbjörgunarsveita, bæði um samstarf þeirra að björgunarmálum um allt land og ekki síður um samstarf þeirra í fjáröflun. T.d. hefur núna á undanförnum vikum og mánuðum verið unnið í dómsmrn. að sérstöku samstarfi þessara þriggja landssambanda, og raunar því fjórða sem er Rauði krossinn, um starfrækslu sérstakrar tegundar fjáröflunar sem ekki er af því tagi sem hér er verið að fjalla um. En ástæðan fyrir því að þessi tvö urðu einungis með í frv. í fyrstu gerð, eins og það er hér lagt fram, er þessi: Þau áttu hugmyndina og ég taldi eðlilegt að þingið fengi málið til umfjöllunar á þeim grunni fyrst til að byrja með. En ég endurtek það sem ég sagði í framsöguræðu minni, mér finnst eðlilegt að Slysavarnafélag Íslands og Landssamband hjálparsveita skáta komi einnig til samstarfs. Ég efast raunar ekki um vilja þeirra til þess. Síðan þetta kom fram hafa aðilar á þess vegum haft samband við mig og ég hef lýst þeim vilja mínum við þá.
Það var einnig um það spurt af hv. 4. þm. Vestf. hvort ég hefði haft samband við þessa tvo aðila að fyrra bragði. Það gerði ég ekki á undirbúningsstiginu heldur taldi ég eðlilegt að þingið fengi málið til umfjöllunar á þennan hátt. Síðan er það þingsins að leggja grunn að því samstarfi væntanlega í framhaldi.
Einnig var um það spurt af hv. 6. þm. Vesturl. hvers vegna þessi asi væri á málinu eða þessi flýtir. Því er til að svara að nú styttist að þingfrestun og ég taldi mjög brýnt að ná málinu þannig fram núna að tækifæri gæfist í þinghléi að vinna málið áfram þannig að þegar þing kemur saman
aftur eftir jólahlé þá liggi fyrir í störfum allshn. Ed. nánari atriði í þessu sambandi. Ég legg síðan áherslu á að þetta mál fái sem farsælastan framgang hér í deildinni og í þinginu, öllum sem hlut eiga að máli til heilla og þeir eru ekki fáir.