Danfríður Skarphéðinsdóttir :
Virðulegur forseti. Ég verð nú að segja að mér finnst svör hæstv. dómsmrh. undarleg í þessu máli og lýsa skilningsleysi hans á mikilvægi þess að störf björgunarsveita í landinu séu samhæfð og á milli björgunarsveita sé jákvætt og traust samstarf. Það sem ég var að tala um í sambandi við flýti við að leggja fram þetta mál var að mér finnst, einmitt eins og hæstv. dómsmrh. viðurkenndi, að málið sé aðeins hálfklárað. Hann talaði um það sjálfur í upphafi að það sé eðlilegt að aðrir aðilar komi inn í en ég held einmitt að það að varpa þessu frv. inn í þingið núna á allra síðustu dögum fyrir jól geti valdið misskilningi og jafnvel tortryggni milli þeirra aðila sem vinna að björgunarmálum í landinu. Mér fannst koma fram í fjölmiðlum í gær að bæði fulltrúar Landssambands hjálparsveita skáta og Slysavarnafélags Íslands voru undrandi einmitt vegna þess samstarfs sem hefur verið milli þeirra og Flugbjörgunarsveitar Íslands að undanförnu. Ég vil leggja áherslu á að það er mjög mikilvægt að gott samstarf, traust og trúnaður ríki milli þeirra aðila sem vinna björgunarstörf í sjálfboðavinnu. Björgunarsveitir eru, eins og ég minntist á áðan, allar í einhvers konar fjáröflun og veitir ekki af.
Mér finnst þetta frv. geta verið til þess fallið að reka á milli þeirra fleyg. En ég vona að við fáum góðan tíma til þess að skoða þetta í samráði við aðila sem að björgunarmálum starfa og getum síðan tekið afstöðu bæði til þess og eins þeirrar fjármögnunar sem hér er verið að leggja til í rólegheitum þegar þing kemur saman á ný. Ég vil leggja áherslu á það að ég tel afar mikilvægt í svona málum að rætt sé við alla sem aðild eiga að málinu. Ég skil ekki hvers vegna þurfti að merkja þetta frv. Flugbjörgunarsveitinni og Skáksambandi Íslands með þeirri skýringu einni að þeir hafi átt hugmyndina að samvinnunni.