Lánsfjárlög 1991
Miðvikudaginn 19. desember 1990


     Forseti (Danfríður Skarphéðinsdóttir) :
    Vegna orða hv. 2. þm. Norðurl. e. vill forseti geta þess að ég lét leita fjmrh. áðan meðan hv. 18. þm. Reykv. hélt ræðu sína. Hann reyndist vera á mjög mikilvægum fundi sem hann ekki gat komist burt af en ég mun leggja drög að því að hæstv. fjmrh. verði viðstaddur hér kl. 6 þegar umræðan hefst á ný.