Guðmundur Ágústsson (um þingsköp) :
Virðulegi forseti. Ég vil biðja hv. 18. þm. Reykv. afsökunar en ég segi það sama og hv. 2. þm. Norðurl. e. að ég þurfti að bregða mér frá í tvær mínútur. Ég reyndi að hlusta eftir því sem hún hafði að segja. En ég ætlaði aðallega að standa hérna upp og taka undir það sem fram kom í máli hennar og 2. þm. Norðurl. e. að mér finnst það vera mjög slæmt ef hæstv. fjmrh. getur ekki verið hér viðstaddur við 2. umr. þessa þýðingarmikla lagafrv. og svarað þeim fyrirspurnum sem að honum kann að verða beint. Ég hafði að vísu ekki ástæðu til þess að spyrja neinna spurninga en mér finnst það mikil ókurteisi við þingdeildina ef fjmrh. ætlar að hunsa það að hlusta á þingmenn og hvað þeir hafa til málanna að leggja. Hér er um að ræða það þýðingarmikið mál sem varðar flesta þjóðfélagsþegna, ekki talandi um líf ýmissa stofnana á vegum ríkisins þannig að hann er ekkert of góður til þess að taka þá ábyrgð með okkur sem við erum hér að fjalla um.