Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
Virðulegi forseti. Ég vil í fyrstu segja að ekki er hægt að fullyrða neitt um það hvaða áhrif ríkisfjármálin á næsta ári kunna að hafa á vaxtaþróunina fyrr en menn sjá endanlega niðurstöðu fjárlaganna og ýmsar aðrar breytingar þar að lútandi. Ég get fullyrt við hv. þm. að þær hallatölur sem nefndar hafa verið hér í þingsölum eða utan þingsala í fjölmiðlum síðustu daga eru úr lausu lofti gripnar. Sá endanlegi halli sem á fjárlögunum mun verða verður töluvert minni en sagt hefur verið í fjölmiðlum eða á þingi síðustu daga. Það mun nú koma í ljós á næsta sólarhring.
Hv. þm. beindi til mín spurningu um hafnamál. Ég vil fyrst segja að gert er ráð fyrir því í tillögum ríkisstjórnarinnar og fjvn., a.m.k. meiri hl. nefndarinnar, að upphæðin á hafnaframkvæmdir í frv. verði hækkuð í 200 millj. kr. þannig að það verða rúmar 500 millj. kr. sem fara til hafnaframkvæmda samkvæmt þeirri tillögu í fjárlögum næsta árs verði sú tillaga samþykkt.
Í öðru lagi gerði hv. þm. að umtalsefni samkomulag sem þingmenn Reykjaneskjördæmis undir forustu 1. þm. kjördæmisins, Matthíasar Á. Mathiesen, gerðu fyrir rúmu ári síðan og fólst í því að tekið væri á vanda hafnarinnar í Sandgerði gegn því að kjördæmið greiddi af lánunum á næstu árum, af þeim lið sem til kjördæmisins kemur til hafnamála. Það hefur komið fram í umfjöllun fjölmargra aðila að slíkt kerfi getur ekki orðið almenn fyrirmynd. Ég held að allir séu sammála því. Þá væru hafnaframkvæmdirnar í raun og veru komnar alveg úr böndum. Sem meginreglu yrði að mínum dómi fyrst og fremst að taka tillit til tjóna og annarra slíkra atburða sem skyndilega hafa áhrif á breytta fjárþörf til hafnamála. Og ég held að það sé niðurstaða fjvn. varðandi afgreiðslu hafnamála, sem væntanlega mun koma í ljós á morgun, að þessari aðferð verði ekki beitt á öðrum sviðum. Ég vænti þess að það muni liggja skýrt fyrir á morgun.
Ég vona að þessar upplýsingar nægi hv. þm. sem svar við spurningu hans. Ég er hins vegar ekki viss eins og hann um að frv. þurfi að koma aftur til umfjöllunar í þessari hv. deild.